Innlent

Kínverjar vilja verja 5 milljörðum í heilsuþorp Flúðum

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Félag á vegum kínverska ríkisins ætlar að fjármagna fimm milljarða króna uppbyggingu á heilsuþorpi með nýrri heilsurækt og spa á Flúðum, en auk þess er stefnt að því að byggja hótel og fjölda íbúða. Kínverjarnir verða ekki hluthafar í fyrirtækinu sem byggir heldur leggja því aðeins til fjármagn.

Félag á vegum kínverska ríkisins ætlar að fjármagna fimm milljarða króna uppbyggingu á heilsuþorpi með nýrri heilsurækt og spa á Flúðum, en auk þess er stefnt að því að byggja hótel og fjölda íbúða. Kínverjarnir verða ekki hluthafar í fyrirtækinu sem byggir heldur leggja því aðeins til fjármagn.

Það er á jörðinni Gröf á Flúðum sem heilsuþorpið á að rísa en jörðin er að mestu leyti í eigu sveitarfélagsins Hrunamannahrepps.

Árni Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður er stjórnarformaður Flúða Spa - Heilsuþorps ehf. sem hefur leitað um nokkra hríð að fjárfestum til að reisa myndarlegt heilsuþorp með spa, líkamsrækt og heilsuhóteli á Flúðum. Hann hafði svo samband við Íslandsstofu og þá tóku hjólin að snúast.

Kínverska fyrirtækið CSST hafði samband við Árna fyrir milligöngu Íslandsstofu, en CSST framleiðir m.a eftirlitsbúnað til að fylgjast með ferðum fólks. Síðan fékk Árni bréf frá Yang Yue, forstjóra Smart Cities International Ltd. annars félags á vegum kínverska ríkisins þar sem forstjórinn lýsir yfir áhuga á að koma að verkefninu á Flúðum og fjármagna það.

Verða Kínverjarnir hluthafar í fyrirtækinu sem rekur spa á svæðinu eða koma þeir bara að verkefninu sem lánveitendur? „Þeir koma fyrst og fremst að þessu sem lánveitendur og kannski að hluta til verktakar, en við höfum tekið það alveg skýrt fram við þá að það komi ekki til greina að hingað komi kínverskir starfsmenn til að vinna að þessu," segir Árni Gunnarsson.

Skipulagsvinna er langt á veg komin og Árni segir að reiknað hafi verið út að 130-140 varanleg störf skapist á staðnum vegna verkefnisins.

Árni segir að ávinningur Kínverjanna sé aðallega vaxtatekjur af láni til Heilsuþorps ehf. en fyrirtækið verður áfram í eigu Árna og annarra Íslendinga og sveitarfélagsins Hrunamannahrepps.

„Síðan hafa aðrir kínverskir aðilar sýnt því áhuga að senda hingað kínverska ferðamenn," segir Árni, en kínverskum ferðamönnum hefur fjölgað mikið hér á landi að undanförnu. Á þessu ári komu sjö þúsund kínverskir ferðamenn til Íslands og hefur þeim fjölgað um helming frá í fyrra en Heilsuþorpið verður markaðssett sérstaklega í Kína.

Eru einhverjar vísbendingar um að áhugi Kínverjanna sé til kominn vegna ráðabruggs kínverskra stjórnvalda, eins og ýmsir ýjuðu að í Nubo-málinu? „Ég er nokkuð sannfærður um að svona ákvörðun er ekki tekin nema að hluta til á pólitískum forsendum. Ég hef látið mér detta það í hug að Kínverjum hafi þótt Grímsstaðamálið fara illa með ímynd þeirra hér á Íslandi og kannski vilja þeir bæta úr því," segir Árni. thorbjorn@stod2.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×