Kolbeinn fer ekki til Zagreb Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. nóvember 2013 10:33 Kolbeinn í leiknum á föstudaginn. Mynd/Vilhelm
Kolbeinn Sigþórsson ferðast ekki með íslenska landsliðinu til Zagreb í dag og missir því af síðari leiknum gegn Króatíu í umspilinu fyrir sæti á HM 2014. KSÍ staðfesti þetta við Vísi í morgun. Kolbeinn tognaði á ökkla og var borinn af velli undir lok fyrri hálfleiks þegar Ísland gerði markalaust jafntefli við Króatíu á Laugardalsvelli á föstudagskvöldið. Hann hefur verið í meðhöndlun hjá læknateymi íslenska landsliðsins síðan þá en í morgun varð endanlega ljóst að Kolbeinn myndi ekki ná sér fyrir leikinn á þriðjudaginn. Var ákvörðunin tekin í fullu samráði við sjúkrateymi Ajax í Hollandi. Í fyrstu var óttast að Kolbeinn hefði meiðst alvarlega en myndataka leiddi í ljós að hann væri óbrotinn. Enn er óvitað hvort liðbönd séu sködduð en strax myndaðist mikil bólga á ökklanum og er nú ljóst að Kolbeinn á engan möguleika á að ná sér fyrir leikinn á þriðjudag. Kolbeinn mun halda utan til Hollands á næstu dögum og fer þá í segulómskoðun. Þá kemur væntanlega í ljós hvort hann eigi möguleika á að ná leik Ajax gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu eftir níu daga. Íslenska landsliðið heldur utan síðdegis í beinu flugi til Króatíu.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Hringir og hringir en fær alltaf nei Fótbolti Týndu báðir vegabréfinu sínu og missa af landsleikjum Fótbolti Landsliðskonurnar eiga von á barni saman Enski boltinn Tengdasonur Keane skoraði fyrir enska landsliðið Enski boltinn „Þessi strákur er bara algjört grín“ Sport Blær var uppeldisfélaginu erfiður í kvöld Handbolti Heimildaþáttaröð um lið Rooney og Guðlaugs Victors Enski boltinn Borce Ilievski snýr aftur í Breiðholtið og tekur við ÍR Körfubolti 27 þúsund miðar seldir á leikinn á morgun Fótbolti San Marínó vann aftur og komst upp Fótbolti Fleiri fréttir Tengdasonur Keane skoraði fyrir enska landsliðið Hringir og hringir en fær alltaf nei Heimildaþáttaröð um lið Rooney og Guðlaugs Victors Týndu báðir vegabréfinu sínu og missa af landsleikjum San Marínó vann aftur og komst upp Króatar og Danir tryggðu sér sæti í átta liða úrslitunum 27 þúsund miðar seldir á leikinn á morgun Landsliðskonurnar eiga von á barni saman Amorim fékk loksins að stýra æfingu hjá Man. United Liverpool fær Van Dijk fyrr til baka Jóhann Berg um Aron Einar: Ég veit hvernig honum líður Kane í viðtali við nýju styttuna af honum Svona var blaðamannafundur Íslands í Wales Aron Einar ekki með á morgun Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Utan vallar: Tilviljanirnar verða vart ótrúlegri | Ég skammaðist mín Tóku mynd af sér með Ronaldo eftir stórt tap: „Af hverju er það ekki í lagi?“ Ekki útlit fyrir breytingar á hópnum fyrir stórleikinn gegn Wales Fékk sjö leikja bann fyrir það sem hann sagði um eigin fyrirliða Hin 38 ára Marta gerði tvær að fíflum með ótrúlegu marki Spilar heima á Tenerife í kvöld og bað um 45 miða Róbert Orri með sjálfsmark ársins: „Fáránlegt atvik“ Man. Utd reynir við rándýra ungstirnið sem Amorim leyfði að blómstra „Aumkunarvert að tala um það jákvæða eftir 5-0 tap“ Þrumuskalli Glódísar kom Bæjurum á bragðið Frakkar lögðu Ítali í Mílanó Haaland með þrennu og Norðmenn efstir Lærisveinar Heimis teknir í kennslustund á Wembley Góður sigur U21-árs strákanna á Spáni Glódís kom Bæjurum á bragðið með hörkuskalla Sjá meira