Innlent

Konur í fjölmiðlum næsta verk

Svavar Hávarðsson skrifar
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir er nýr formaður FKA og tók við keflinu úr hendi forvera síns, Hafdísar Jónsdóttur. fréttablaðið/danni
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir er nýr formaður FKA og tók við keflinu úr hendi forvera síns, Hafdísar Jónsdóttur. fréttablaðið/danni

Aukinn hlutur kvenna í fjölmiðlum er nýtt átaksverkefni Félags kvenna í atvinnurekstri (FKA). Þetta var kynnt á aðalfundi félagsins í fyrradag, en tímarammi átaksins er til ársins 2017. Verkefninu er ætlað að auka hlut kvenna í fjölmiðlum þannig að konur verði sem sýnilegastar í fréttum og þjóðfélagsumræðu. Á þann hátt stuðlar félagið að því að mannauður sé nýttur sem best og þekking kvenna jafnt sem karla njóti sín í allri umræðu.

Mat félagsins er að verkefni um fjölgun kvenna í stjórnum félaga hafi borið óumdeilanlegan árangur, en á aðalfundi FKA vorið 2009 kynnti félagið verkefni til fjögurra ára sem laut að þessu. Þó verkefninu teljist formlega lokið af hálfu félagsins mun FKA áfram beita sér fyrir því að fjölbreytni í stjórnum félaga verði ávallt í heiðri höfð. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, framkvæmdastjóri og fjárfestir, var kosin nýr formaður FKA á fundinum í gær. Hafdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri World Class, lét af störfum eftir fjögurra ára starf. -




Fleiri fréttir

Sjá meira


×