Innlent

Kortleggur aðstæður fátækra Reykvíkinga

Bjarni Karlsson.
Bjarni Karlsson. Mynd/Stefán Karlsson

Velferðarráð Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu meirihlutaflokkanna um að kortleggja fjölda og aðstæður þeirra Reykvíkinga sem búa við fátækt. Hlutverk hópsins, sem verður undir formennsku séra Bjarna Karlssonar, er jafnframt að koma með tillögur um það hvernig borgin og aðrar velferðarstofnanir samfélagsins geta betur stutt þá íbúa Reykjavíkur sem búa við fátækt.

„Þessi vinna verður ekki unnin á einni nóttu en hópurinn á að skila áfangaskýrslu eigi síðar en 1. október, en starfa annars út árið," segir Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs, í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×