Innlent

Krefjast frekari rannsókna á lífsýnum úr Bobby Fischer

Valur Grettisson skrifar
Frá útför Bobby Fischers.
Frá útför Bobby Fischers.

Marilyn Young, móðir Jinky Young, vill frekari rannsóknir á lífsýnum úr skákmeistaranum Bobby Fischer. Lögmaður hennar krafðist þess í morgun í fyrirtöku málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Líkamsleifar Bobby Fischers voru grafnar upp í sumar og úr þeim tekin lífsýni til þess að staðfesta hvort hann væri sannarlega barnsfaðir Marilyns. Niðurstöður rannsóknar sýndu að svo væri líklega ekki.

Svo virðist sem Marilyn sé ósátt við niðurstöðuna og krefst því frekari rannsóknar á sýnunum.

Samuel Estito, annar lögmaður Marylin, gagnrýndi hvernig staðið var að uppgreftrinum á líki Bobby Fischer í erlendum fjölmiðlum stuttu eftir niðurstöðuna.

Hann sagði Þórð Bogason, íslenskan lögmann konunnar, hafa lýst því yfir of snemma að ekki væri grundvöllur til að halda faðernismálinu til streitu og gefur í skyn að Garðar Sverrisson, návinur Bobby Fischer, gæti hafa átt við líkið til að koma í veg fyrir að niðurstaða næðist í faðernismálinu.

Lögmaður frænda Fischers, auk lögmanns meintrar eiginkonu Fischers, hafa krafist frávísunar á kröfu lögmanns Marilyns um frekari rannsóknir.

Málflutningur um kröfuna fer fram í október. Svo mun dómari taka afstöðu til hennar. Athygli vekur að málið hefur nú verið að velkjast í dómskerfinu í þrjú ár.

Deilan snýst um það hver sé réttmætur erfingi Fischers. Meðal annars er deilt um það hvort Mioko Watai sé raunverulega eiginkona Fischers. Síðar blandaðist Marilyn inn í málið og sagðist eiga með honum dóttur. Marilyn er frá Filippseyjum en Fischer og hún áttu í ástarsambandi um skeið.

Ekki náðist í Þórð við gerð fréttarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×