Lífið

Kyntröllið orðið pabbi

Marín Manda skrifar
HJÓn Channing Tatum og Jenna Dewan-Tatum.
HJÓn Channing Tatum og Jenna Dewan-Tatum.

Channing Tatum og kona hans, Jenna Dewan-Tatum, hafa eignast sitt fyrsta barn samkvæmt Us Weekly, en Dewan-Tatum fæddi frumburðinn á sjúkrahúsi í London þann 30. maí. Kyn barnsins hefur ekki enn verið opinberað.

Tatum og Dewan-Tatum kynntust við tökur á dansmyndinni „Step Up“ árið 2006. Parið gifti sig í júlí árið 2009 eftir að hafa verið saman í þrjú ár og í vetur tilkynntu þau að von væri á erfingja. „Ég hélt að líkami minn myndi breytast svo hratt á meðgöngunni að ég myndi fríka út, en það er ástæða fyrir því að konur ganga með barn í 9 mánuði. Í lokin ertu tilbúin að eignast þetta barn,“ sagði Jenna Dewan-Tatum í samtali við Glamour.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.