Innlent

Lady Gaga loksins komin

Lady Gaga mætti til landsins í morgun. Hún dvelur á Hótel Borg á meðan hún er á landinu. Gaga er hér til þess að taka á móti verðlaunum frá Lennon/Ono sjóðnum.

Athöfnin fer fram í Hörpu í dag. Hún gaf sér tíma til þess að tala við aðdáanda fyrir framan Borg og gaf honum eiginhandaráritun. Sá heitir Manny og er bandarískur.

Tíu manna fylgdarlið hennar er með í för. Gaga vildi ekkert tala við fjölmiðla við komuna.

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá þegar Lady Gaga lendir með einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli og þegar hún gengur inn á Hótel Borg.





Gaga fyrir framan Hótel Borg.
Lady Gaga kemur hingað til lands frá London, þar sem hún hélt meðal annars tónleika og hitti Julian Assange, stofnanda WikiLeaks. Fréttir bárust af því í gærkvöld að Gaga hefði komið til landsins um sjöleytið og birtust myndir af konu, sem reyndist síðan alls ekki hafa verið hún.


Tengdar fréttir

Jón Gnarr fagnar komu Gaga

Jón Gnarr borgarstjóri fagnar því að Lady Gaga skuli fá LennonOno friðarverðlaunin. Eins og Vísir greindi frá í morgun mun Gaga koma til landsins í næstu viku til að taka á móti þeim. Jón segir að verðlaunin veki töluverða athygli í ákveðnum hóp fólks sem lætur sig varða friðar- og mannréttindamál í heiminum. "Og það þykir ákveðinn heiður að hljóta þessi verðlaun," segir Jón Gnarr.

Lady Gaga lent

Vél Lady Gaga er lent á Reykjavíkurflugvelli. Hún lenti klukkan korter yfir sjö. Töluvert umstang er í kringum Reykjavíkurflugvöll vegna komunnar en þar eru tollverðir og þá hefur fréttamaður Stöðvar 2 og Vísis orðið var við lífverði á vellinum.

Tálbeita á Reykjavíkurflugvelli?

Tvennum sögum fer af því hvort það hafi í raun og veru verið Lady Gaga sem lenti á Reykjavíkurflugvelli um sjöleytið í kvöld, eða hvort um eftirhermu hafi verið að ræða. Dyggur aðdáandi beið komu hennar. Hún segist hreint ekki vera viss hvort þarna hefði rétt manneskja hafi verið á ferð.

Yoko Ono stressuð yfir morgundeginum

Listakonan Yoko Ono og ekkja bítilsins Johns Lennon segir deginum í dag fylgja mikið stress enda skipti hana öllu máli morgundagurinn heppnist vel þegar fólk víða heim heiðrar minningu Lennon. Í tilefni dagsins afhendir hún meðal annars stórstjörnunni Lady Gaga sérstök friðarverðlaun.

Gaga tekur við verðlaununum á lokaðri athöfn

Lady Gaga mun væntanlega taka við friðarverðlaunum Ono/Lennon á lokaðri athöfn í Hörpu. Athöfnin mun fara fram á þriðjudag í næstu viku, eins og fram kom á Vísi í morgun. Eftir athöfnina verður friðarsúlan svo tendruð í Viðey.

Aðgerðasinninn Lady Gaga

Nú styttist í að poppstjarnan Lady Gaga sæki Ísland heim en hún mun taka við viðurkenningu úr LennonOno friðarsjóðnum í Hörpu á þriðjudaginn. Lady Gaga, sem réttu nafni heitir Stefani Joanne Angelina Germanotta, hlýtur viðurkenninguna fyrir mannúðarstörf sín.

Lady Gaga ældi í miðju lagi - en missti ekki úr takti

Stórstjarnan Lady Gaga, sem mun veita friðarverðlaunum Yoko Ono og John Lennon móttöku á morgun, átti heldur erfiða helgi, en hún ældi fjórum sinnum á sviði þar sem hún var að spila fyrir aðdáendur sína í Barcelona á Spáni.

Lady Gaga og Julian Assange eyddu kvöldi saman

Stórstjarnan Lady Gaga, sem mun taka á móti LENNON/ONO friðarverðlaunum í Hörpu í dag, hitti stofnanda WikiLeaks um helgina, skömmu eftir að hún hafði kynnt nýtt ilmvatn í versluninni Harrods.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×