Leikjavísir

Lego framleiðir geimskip byggt á tölvuleiknum EVE

Lego-útgáfa af geimskipi úr EVE Online verður framleidd á næstunni.
Lego-útgáfa af geimskipi úr EVE Online verður framleidd á næstunni.
„Það er verið að fljúga inn módeli sem verður til sýnis á Fanfest," segir Eldar Ástþórsson, verkefnastjóri markaðsdeildar hjá CCP.

Ný Lego-útgáfa af geimskipi úr tölvuleiknum EVE Online verður til sýnis á EVE Fanfest-hátíðinni sem hefst í Hörpu á fimmtudaginn.

„Það var ákveðið að láta slag standa og vinna með Lego að framleiðslu á Lego-skipi. Það eru rúmlega 360 þúsund áskrifendur að EVE Online í dag og við höfum fundið fyrir því að það er áhugi fyrir einmitt svona vörum," segir Eldar. „Það er gaman að gera þetta í samstarfi við öfluga aðila eins og Lego. Hver veit nema þetta sé fyrsta skrefið í átt að frekari samstarfi með þeim. En eins og er þá er þetta eina módelið sem er fyrirhugað að setja á markað."

Það er skammt stórra högga á milli hjá CCP því í gær var tilkynnt um að annar tölvuleikur fyrirtækisins, DUST 514, verði heimsfrumsýndur á upphafsdegi Fanfest. Þar verður almenningi og blaðamönnum í fyrsta sinn gefinn kostur á að spila skotleikinn. Yfir sjötíu erlendir blaðamenn eru staddir hérlendis vegna hátíðarinnar og frumsýningar leiksins, sem hefur verið í þróun síðustu fjögur ár. Að sögn Hilmars Veigars Péturssonar, framkvæmdastjóra CCP, eru um 170 manns að vinna við leikinn hjá fyrirtækinu.

„Hann er sjúklega flottur," segir hann, spurður út í DUST 514.

Fyrir tæpu ári tilkynnti fyrirtækið um samstarf sitt við Sony um útgáfu á leiknum. Í upphafi þessa mánaðar tilkynnti CCP að hann yrði fáanlegur fyrir eigendur PlayStation 3 án endurgjalds í gegnum PlayStation Network Sony. Þar með yrði hann fyrsti leikur sinnar tegundar til að styðjast við nýtt viðskiptamódel, svokallaða Free to play-útgáfu þar sem leikurinn er ókeypis en tekna er aflað með sölu á varningi og ýmsum viðbótum sem opna á frekari möguleika fyrir spilara leiksins. Fyrir vikið vonast Hilmar til að mun fleiri eigi eftir að spila leikinn en hinir 360 þúsund manns sem eru áskrifendur að EVE-Online.

„Í lok þessa árs, ef allt gengur upp, mun það teljast í mörgum milljónum hve margir eru að spila þennan leik," segir hann.

EVE Fanfest fer fram í áttunda sinn í Reykjavík dagana 22.-24. mars. Búist er við á annað þúsund gestum á hátíðina.

freyr@frettabladid.is


Tengdar fréttir

Fanfest: Þjóðhátíð tölvuleikjaspilara

Tölvuleikjaframleiðandinn CCP kynnti nú síðdegis nýjan tölvuleik fyrir Play Station leikjatölvur. Leikurinn hefur verið í þróun í fjögur ár og markar hann tímamót í tölvuleikjaiðnaði heimsins segir framkvæmdastjóri fyrirtækisins.

Árshátíð CCP - DUST 514 heimsfrumsýndur

"Við erum beinlínis að taka yfir Hörpuna," segir Eldar Ástþórsson, verkefnastjóri markaðsdeildar CCP. Fanfest hátíðin hófst í dag en þar mun tölvuleikjaframleiðandinn CCP heimsfrumsýna nýjustu afurð sína - DUST 514.

CCP með fyrirlestur í Hörpu

Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP stendur fyrir opnum fyrirlestri og kynningu á starfsemi fyrirtækisins í Hörpunni á morgun. Rætt verður um fjölspilunarleikinn EVE Online og EVE Fanfest hátíðinni sem haldin verður í tónlistarhúsinu um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×