Innlent

Líst ljómandi vel á lífeyrissjóðirnir kaupi helming í Landsvirkjun

Stjórnarformanni eins stærsta lífeyrissjóðs landsins líst ljómandi vel á að lífeyrissjóðirnir kaupi allt að helmingshlut í Landsvirkjun á móti ríkinu og telur að þannig vinni allir. Hægt sé að tryggja að lífeyrissjóðirnir selji hlutinn ekki áfram.

Helgi Magnússon, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Verzlunarmanna, segir í nýjasta þætti Klinksins sem birtist á Vísi á morgun að fjárfestingarumhverfi lífeyrissjóðanna sé ekki upp á marga fiska nú um stundir og gjaldeyrishöftin geri þeim erfitt fyrir. Því fagnar hann hugmyndinni um að sjóðirnir kaupi hlut í Landsvirkjun á móti ríkinu, en fréttastofa hefur fjallað ítarlega um hana að undanförnu.

„Mér líst bara alveg ljómandi vel á hana," segir Helgi. „Lífeyrissjóðunum veitir ekki af tækifærum til að fjárfesta og eitt af þeim tækifærum sem oft hafa verið nefnd er einmitt Landsvirkjun."

Hann telur að salan á Landsvirkjun gæti falið í sér ávinning fyrir alla sem kæmu að málinu, sérstaklega ef rétt væri að því staðið. Lífeyrissjóðirnir komi peningum í vinnu, ríkissjóður fái peninga í kassann og fjármögnun Landsvirkjunar verði tryggari.

„Að mínu mati blasir það við að þetta væri góð lausn fyrir samfélagið allt ef það væri hægt að útfæra sölu á 40-50 prósentum til lífeyrissjóðanna með sérstakri löggjöf. Þeim væri ekki heimilt að selja hlutina út fyrir sinn hóp, eða eingöngu aftur til ríkisins ef þannig stæði á."

Hann fagnar því áhuga viðskiptaráðherra á hugmyndinni en efast um að hún nái fram að ganga á meðan Vinstri grænir eiga sæti í ríkisstjórn. Hann bendir þó á að aðeins 16 mánuðir eru eftir af kjörtímabilinu.

„Þessi aðgerð er ekki eitthvað sem tekin er skyndiákvörðun um. Ég held að tíminn fram að næstu kosningum sé ágætur til að þróa þessa umræðu og svo sjáum við til hvort Vinstri-grænir verði áfram í ríkisstjórn. Það er ekkert víst."



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×