Loka deild vegna sýkingar Svavar Hávarðsson skrifar 7. febrúar 2013 06:00 Hlíf Steingrímsdóttir, yfirlæknir á blóðsjúkdómadeild, segir að ónæmi fyrir sýklalyfjum einkenni þann stofn bakteríunnar sem greindist í gær.
Blóðlækningadeild Landspítalans var lokað í gær vegna bakteríusýkingar sem greindist á deildinni. Stofn bakteríunnar sem greindist er ónæmur fyrir sýklalyfjum. Hann er landlægur á spítölum erlendis en sjaldgæfur hér á landi. Deildin verður lokuð þangað til sýni hafa verið ræktuð úr öllum sjúklingum sem þar voru fyrir, og í það minnsta fram á mánudag. Yfirlæknir deildarinnar segir sýkinguna undirstrika mikilvægi þess að húsnæði spítalans verði bætt. Hlíf Steingrímsdóttir, yfirlæknir á blóðsjúkdómadeild, segir að ónæmi fyrir sýklalyfjum einkenni þann stofn bakteríunnar sem greindist í gær. Hún sé hins vegar hluti af umhverfinu og yfirleitt ekki mjög skaðleg. Það sé hins vegar alvarlegt þegar hún komi upp á blóðlækningadeild spítalans. „Þetta er landlægt á mörgum spítölum erlendis en við höfum verið blessunarlega laus við þetta hér. Reyndar kom þetta upp á deildinni fyrir þremur árum en þá tókst okkur að halda þessu í skefjum og koma í veg fyrir frekari smit. Svo kemur þetta upp óvænt núna og við grípum til viðeigandi aðgerða; tökum ekki inn nýja sjúklinga og setjum þá sem eru á deildinni í sérstaka einangrun, svokallaða smitgát." Deildin er eina sérhæfðu blóðlækningadeild landsins. Þar dvelst fólk sem haldið er ýmsum illkynja blóðsjúkdómum á borð við hvítblæði og eitlakrabbamein. Sjúklingarnir eiga það flestir sameiginlegt að vera mjög viðkvæmir fyrir ýmiss konar sýkingum. Hlíf segir að ákveðið hafi verið að rækta sýni úr öllum fjórtán sjúklingunum á deildinni til að ganga úr skugga um að sýkingin hafi ekki breiðst út. Eins sé það forvörn sem miði að því að stofn bakteríunnar nái ekki fótfestu hér á landi. Á blóðlækningadeildinni eru fjórtán rúm; sex á einbýlum. Allt að fjórir sjúklingar eru um hvert salerni en oft kemur sú staða upp að vegna sýkingarhættu megi sjúklingar ekki deila salerni. „Þetta snýst um öryggi sjúklinga, og sérstaklega í ljósi svona sýkingarvarna," segir Hlíf.
Mest lesið Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Útimarkaðurinn í Mosó hættir Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Fleiri fréttir Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka Sjá meira