Innlent

Magnús Scheving bauð Sahil á Latabæjarsýninguna á Íslandi

Valur Grettisson skrifar
Sahil Saeed er hugsanlega á leiðinni til Íslands.
Sahil Saeed er hugsanlega á leiðinni til Íslands.

Íþróttaálfurinn sjálfur, Magnús Scheving, hefur falið blaðafulltrúa sínum í Bretlandi að bjóða hinum fimm ára gamla Sahil Saeed og fjölskyldu til Íslands næstu helgi til þess að fylgjast með Latabæjarsýningunni. Þetta kom fram í viðtali við Magnús í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Sahil var rænt í Pakistan í byrjun mars og vakti málið heimsathygli. Sahil, sem er breskur af pakistönskum uppruna, var rænt frá ömmu sinni þann 3. mars. Tveimur vikum síðar borgaði faðir hans mannræningjunum um 20 milljónir króna í lausnarfé. Skiptin fóru fram í París og var drengnum sleppt stuttu síðar. Lögreglan handtók svo þrennt fyrir mannránið.

Vísir greindi frá því í vikunni að það fyrsta sem Sahil spurði móður sína að í gegnum síma eftir að hann var látinn laus, var hvar dúkkan hans af íþróttaálfinum væri. Móðir hans sagði svo í viðtali við BBC að sonur sinn væri gríðarlegur aðdáandi Latabæjar.

Íþróttaálfurinn talar við börnin. Hann reynir að koma til hjálpar þegar hann getur.

„Blaðafulltrúinn í Bretlandi er búinn að tala við fjölskylduna og þá er spurningin að senda honum eitthvað sniðugt og kveðju frá Íþróttaálfinum. Svo ætlum við að bjóða honum á sýninguna næstu helgi," sagði hann í viðtalinu á Bylgjunni.

„Það er svo gaman að heyra svona sögu sem endar vel," segir Magnús en það hefur ekki alltaf gerst. Áður aðstoðaði hann foreldra Madelaine McCann, sem var rænt í Portúgal. Hún fannst hinsvegar aldrei.

Magnús segir í ævintýrinu séu persónur með nokkurskonar kristal sem kallar á Íþróttaálfinn þegar þau eru í vandræðum. Þá kemur álfurinn stökkvandi úr loftfarinu og bjargar deginum.

„Þegar ég hef ferðast um heiminn sem Íþróttaálfurinn er ég stundum spurður: Af hverju komstu ekki? Þá verður maður dálítið sorgmæddur að geta ekki aðstoðað og veit eiginlega ekki hverju skal svara," segir Magnús sem vill nú koma Sahil til Íslands til þess að hitta átrúnaðargoðið sitt.

„Hjartað tekur alltaf kipp við að heyra svona fréttir. Ég er bara feginn að þetta endaði vel," segir Magnús.

Óvíst er hvort Sahil litli komi til Íslands að sögn Magnúsar. Hann segir það velta á því hvort fjölskyldan sé tilbúin til þess. Séu þau til, gæti Sahil litli skotið upp kollinum í Laugardalnum þar sem hátíðin mun fara fram.


Tengdar fréttir

Sahil kominn heim og getur farið að leika sér með Latabæjarleikföngin

Sahil Saeed er kominn heim til Bretlands eftir að hafa verið rænt í Pakistan í byrjun mars. Sahil er fimm ára gamall snáði af pakistönskum uppruna en hann var hjá ömmu sinni þegar honum var rænt. Faðir drengsins greiddi mannræningjunum 110 þúsund pund, eða rúmlega 20 milljónir, til þess að endurheimta drenginn sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×