Viðskipti innlent

Mál og menning skellir í lás

Mál og Menning við Laugarveg
Mál og Menning við Laugarveg
Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi 18 lokaði dyrum sínum í gærkvöldi og opnar ekki aftur. Litlar ef nokkrar líkur eru taldar á því að verslunin verði endurreist í fyrri mynd. Forsvarsmenn fyrirtækisins funduðu með starfsmönnum klukkan tíu í gærkvöldi og greindu þeim frá ákvörðun sinni.

Jóhannes Sigurðsson, stjórnar­formaður Bókabúðar Máls og menningar ehf., segir það mikil vonbrigði að þurfa að loka versluninni. „En við þurftum að játa okkur sigraða því við ofurefli er að etja. Verslun af þessari tegund, og þrátt fyrir að hún njóti mikillar velvildar fólksins í landinu, getur aldrei keppt við bankana meðan þeir beita afli sínu eins og hér var raunin á."

Miklar sviptingar hafa verið í rekstri verslunarinnar undanfarin ár. Fyrirtækið Kaupangur, sem er í eigu Jóhannesar og Bjarka Júlíussonar, keypti húseignina á Laugavegi 18 árið 2007 en þá hafði Penninn, sem eftir gjaldþrot var í eigu Kaupþings banka, nú Arion banka, keypt rekstur bókabúðarinnar. Bankinn og Kaupangur náðu ekki samningum um leigu á húsnæðinu og því samstarfi lauk. Þá opnaði Arion banki bókaverslun í húsnæði fyrrum aðalútibús SPRON á Skólavörðustíg undir merkjum Pennans Eymundssonar, en það húsnæði er einnig í eigu bankans.

Samkvæmt fréttum frá þeim tíma sló opnun þeirrar verslunar út af borðinu samning á milli Kaupangurs, Iðu og fleiri, um að taka húsnæðið á leigu um mitt ár 2009. Síðan hafa þeir Jóhannes og Bjarki rekið verslunina en telja rekstrargrundvöll Máls og menningar brostinn vegna nálægðar við bókaverslun sem rekin er af jafn fjársterkum aðila og Arion banka.

Jóhannes segir ekkert ákveðið um framtíð Laugavegar 18 en hann neitar því ekki að helst vildi hann sjá bókaverslun í rekstri þar eins og undanfarna áratugi. Hann sér hins vegar ekki fyrir sér að slíkt hugnist nokkrum manni vegna þess viðskiptaumhverfis sem nú er í sölu bóka og ritfanga í landinu.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er verslun með bækur og ritföng í eigu bankanna að níu tíundu hlutum. - shá


Tengdar fréttir

Máli og menningu lokað

Eigendur Bókabúðar Máls og menningar að Laugavegi 18 tilkynntu starfsfólki á fundi í kvöld að farið hafi verið fram á gjaldþrotaskipti hjá félaginu sem rekur bókabúðina. Verslunin verður ekki opnuð í fyrramálið.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×