Erlent

Meiri líkur á vöggudauða í rúmi með foreldrum

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Mynd/Getty

Ný bresk rannsókn leiðir í ljós að ungabörn sem sofa uppi í hjá foreldrum sínum eru fimm sinnum líklegri til að deyja vöggudauða en börn sem sofa ein í rúmi.

Reykingar foreldra sem sofa við hlið barna sinna eru helsti orsakavaldur slíkra dauðsfalla, en samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar, sem birtist í læknaritinu BMJ Open, er slíkt svefnfyrirkomulag óæskilegt, jafnvel þótt hvorugt foreldrið reyki.

Hafa heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi verið hvött til þess að bregðast hratt við og endurskoða fyrri ráðleggingar sínar, og beina þeim tilmælum til foreldra að sofa aldrei með börn undir þriggja mánaða aldri uppi í hjá sér. Það hefur þegar verið gert í Bandaríkjunum og Hollandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×