Viðskipti innlent

Millifærði hundrað milljónir daginn eftir beiðni um kyrrsetningu

Þorbjörn Þórðarson skrifar

Jón Ásgeir Jóhannesson millifærði 585 þúsund pund, jafnvirði rúmlega hundrað milljónum króna, af einkareikningi sínum daginn eftir að slitastjórn Glitnis lagði fram kröfu um frystingu eigna hans. Jón Ásgeir hefur nú þegar greitt slitastjórn Glitnis tæplega tvo milljarða króna í tengslum við uppgjör á láni vegna skíðaskála í Frakklandi.

Héraðsdómstóll Lundúnaborgar tók í gær fyrir kröfu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar en hann krafðist þess að kröfu Glitnis banka um frystingu eigna hans á heimsvísu yrði vísað frá. Dómarinn í málinu féllst ekki á það og féllst jafnframt á það mat slitastjórnarinnar að hann hafi leynt eignum sínum, en í skjali sem Jón Ásgeir lagði fram fyrir dómstólnum sagði hann eigur sínar samtals einnar milljónar punda virði.

Dómaranum fannst hæpið að eigur Jóns Ásgeirs hefðu rýrnað jafn mikið á skömmum tíma, en lögð voru fram skjöl sem sýndu að neysla hans hefði verið að meðaltali 55-60 milljónir króna á mánuði á sjö ára tímabili, árin 2001-2008. „There is something unreal about this" sagði dómarinn, eða í lauslegri þýðingu: „Það er eitthvað óraunverulegt við þetta," að því er greint var frá í breska dagblaðinu The Telegraph. Dómaranum fannst ótrúverðugt að svona mikil eyðsla skilaði sér ekki í neinum eignum.

Lisa Kavanagh, talsmaður slitastjórnar Glitnis í Lundúnum, sagði í samtali við fréttastofu að dómarinn hefði m.a komist að þeirri niðurstöðu að hafna kröfum Jóns Ásgeirs þar sem leitt hefði verið í ljós að hann hefði millifært 585 þúsund pund, jafnvirði rúmlega hundrað milljónum króna, af einkareikningi sínum daginn eftir að slitastjórn Glitnis lagði fram kröfu sína um frystingu eigna hans.

Eignir Jóns Ásgeirs verða því áfram í frystingu næstu mánuði, þangað til að dómur fellur í skaðabótamáli sem slitastjórn Glitnis höfðaði gegn honum, Pálma Haraldssyni og Lárusi Welding hér á landi í svokölluðu Aurum Holdings-máli, sem áður hefur verið greint frá.

Jón Ásgeir var dæmdur til að greiða 150 þúsund pund, jafnvirði 30 milljóna króna, í tryggingu vegna lögmannskostnaðar slitastjórnar Glitnis í málinu, þar sem ekki var fallist á kröfu hans, en endanlegur málskostnaðarreikningur liggur ekki fyrir.

Samkvæmt heimildum fréttastofu voru í þinghaldinu í Lundúnum í gær lögð fram gögn sem sýndu tekjur Jóns Ásgeirs. Þar var að finna upplýsingar um að hann hefði fengið jafnvirði 4.000 punda í greiðslur á hverjum mánuði frá 365 miðlum, en það eru rúmlega 750 þúsund krónur. Þá naut hann greiðslna frá fyrirtækjunum Highland Aquisitions, Iceland Foods og House of Fraser sem á síðasta ári námu 700.000 pundum, en það er jafnvirði 132 milljóna króna. Í þinghaldinu mun hins vegar hafa komið fram að Jón Ásgeir væri ekki lengur á launaskrá hjá Iceland Foods og House of Fraser þar sem hann hefði sagt sig úr stjórnum fyrirtækjanna eftir málshöfðun slitastjórnar Glitnis banka.

Jón Ásgeir Jóhannesson greiddi nýlega slitastjórn Glitnis fimmtán milljónir dollara, jafnvirði tæplega tveggja milljarða króna. Þetta staðfestir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis. Samkvæmt heimildum fréttastofu er ástæða greiðslunnar uppgjör á láni sem Glitnir veitti Jóni Ásgeiri til að fjármagna kaup á 101 Chalet skíðaskála í Courchevel í Frakklandi.

Fréttastofa hefur ekki náð tali af Jóni Ásgeiri í dag en hann hefur ekki svarað ítrekuðum skilaboðum fréttastofu. Eiginkona Jóns Ásgeirs er stærsti hluthafi 365 miðla sem eiga og reka fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis.










Tengdar fréttir

Jón Ásgeir: Iceland Foods á peningana

Slitastjórn Glitnis heldur því fram að Jón Ásgeir Jóhannesson eða einhverjir tengdir honum hafi ráðið yfir þrjátíu og átta milljörðum króna í reiðufé á bankareikningum sínum aðeins 15 dögum áður en bankakerfið hrundi í október 2008. Jón Ásgeir segir hins vegar að Iceland Foods hafi átt peningana og eigi þá enn.

Jón Ásgeir sver af sér öll afskipti af stjórnun Glitnis

Jón Ásgeir Jóhannesson, einn stærsti hluthafinn í Glitni banka fyrir hrun, sver af sér öll afskipti af stjórnum bankans í eiðsvörnum vitnisburði fyrir Hæstarétti í New York. „Ég hef ekki gegnt starfi stjórnanda hjá Glitni,“ segir Jón Ásgeir í vitnisburðinum.

Óttast opinberun hússtjórnargagna

Slitastjórn Glitnis rær nú að því öllum árum að fá aðgang að gögnum í vörslu hússtjórnar glæsihýsis á Manhattan-eyju þar sem Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir eiga tvær lúxusíbúðir. Telur slitastjórnin að gögnin, auk gagna úr Royal Bank of Canada, séu nauðsynleg til að rekja slóð þess fjár sem hjónin eru sökuð um að hafa svikið út úr Glitni.

Jón Ásgeir fékk ekki samþykkta frávísunarbeiðni

Jón Ásgeir Jóhannesson segir að eignir sínar séu samtals einnar milljónar punda virði. Breskur dómstóll féllst ekki á það en dómari í kyrrsetningarmáli sem slitastjórn Glitnis hefur höfðað á hendur honum í Lundúnum féllst ekki á kröfu Jóns Ásgeirs um frávísun.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×