Misheppnuð ævintýri Silicor Materials Stefán Ó. Jónsson skrifar 16. júlí 2014 15:15 Athafnasvæðið á Grundartanga. VÍSIR/PJETUR
Bandaríska fyrirtækið Silicor Materials, sem hefur ákveðið að reisa sólarkísilverksmiðju á Grundartanga, hefur áður þurft að falla frá keimlíkum framkvæmdum vegna fjármögnunarörðugleika. Fyrirtækið fyrirhugaði að hefja framleiðslu á sólarkísil í Lownedes-sýslu í Mississippi í Bandaríkjunum en verkefnið hljóðaði upp á framkvæmdir fyrir rúmlega 200 milljónir dala, um 46 milljarða króna, og átti það að tryggja um 950 störf á svæðinu. Fyrirhuguð framleiðslugeta var um 16 þúsund tonn á ári. Stjórnvöld í Mississippi höfðu samþykkt í september 2011 að veita fyrirtækinu, sem þá bar nafnið Calisolar, opinbera aðstoð upp á rúmlega 94 milljónir dala, um 10,7 milljarða króna, til að greiða leið framkvæmdanna í fylkinu. Aðstoðin fól meðal annars í sér gatnagerð, hagstæðar lánalínur og margvíslega skattahvata. Eftir að fyrirhuguðum framkvæmdum fyrirtækisins seinkaði sífellt kröfðust yfirvöld í Lownedes-sýslu um mitt ár 2012 að forráðamenn fyrirtækisins legðu fram 150 þúsund dali, rúmlega 17 milljónir króna, í vörslufé. Sýslan útvegaði fyrirtækinu meðal annars um 90 hektara landsvæði til byggingar verksmiðju sinnar og treystu yfirvöld sér ekki til að halda því fráteknu fyrir Silicor ótímabundið. Var upphæðin sögð forsenda þess að fyrirtækinu yrði veitt fyrrgreind aðstoð og myndi fyrirtækið fá upphæðina greidda að fullu til baka við upphaf framkvæmda.Theresa Jester, forstjóri Silicor Materials, og Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna við Grundartanga í lok maí.VÍSIR/BJÖRN SIGURÐSSONVerkefnið fór út um þúfur Silicor mistókst að reiða fram þessa 150 þúsund dali, þrátt fyrir að hafa fengið rúmlega tíu mánaða frest, og aldrei varð úr framkvæmdunum. Silicor náði aldrei að fjármagna framkvæmdir sínar og þurfti því frá að hverfa sem olli yfirvöldum í sýslunni töluverðum heilabrotum. „Við skiljum einfaldlega ekki hvernig einhver sem segist ætla að ráðast í framkvæmdir fyrir rúmlega 200 milljónir dollara á í erfiðleikum með að leggja fram 150 þúsund dali í vörslufé fyrir tvo mikilvæga eindaga,“ sagði Joe Max Higgins, forstjóri Columbus Lowndes Development Link í samtali við þarlenda fjölmiðla. Í upphafi þessa árs voru yfirvöldum í Lownedes-sýslu greiddar rúmlega 27 milljónir króna í skaðabætur til að vega upp á móti útgjöldunum sem þau réðust í til að lokka Silicor til sýslunnar. Þetta er þó ekki í eina skiptið sem fjármögnunarvandi fyrirtækisins hefur komist í heimspressuna en árið 2011 þurfti Silicor Materials, þá einnig undir nafninu Calisolar, að hætta við byggingu verksmiðju í Ohio af sömu ástæðu. Forráðamenn Calisolar höfðu fengið vilyrði fyrir 275 milljóna dala (31 milljarða króna) lánveitingu frá bandarískum yfirvöldum vegna verkefnisins sem þeir afþökkuðu á „síðustu stundu“ því þeir vildu heldur horfa til Mississippi og fyrrnefndar sólarkísilframleiðslu í Lownedes. Skömmu síðar var nafninu breytt í Silicor en nafnbreytingin var sögð tilkomin vegna „stefnubreytingar hjá fyrirtækinu“.Vísir greindi frá því í gær að Silicor Materials hefði náð samkomulagi við Arion-banka um að annast fjármögnun á verkefninu en í samtali við Vísi segir fulltrúi bankans að fjármögnunin „gangi vel“. Eins og áður hefur komið fram hyggst bandaríska fyrirtækið framleiða allt að 19 þúsund tonn af sólarkísil á ári í 77 milljarða króna verksmiðju á Grundartanga. Fyrirtækið vonast til að framkvæmdir geti hafist síðar á þessu ári og að verksmiðjan taki til starfa árið 2016.Breyttar forsendur í Mississippi Í samtali við Vísi segir Davíð Stefánsson, ráðgjafi Silicor á Íslandi, þessa framvindu mála hjá fyrirtækinu í Bandaríkjunum eiga sér eðlilegar skýringar. „Veigamesti þátturinn fólst í því að það kemur upp viðskiptastríð milli Bandaríkjanna og Kína sem þýddi að tæplega 60 prósent tollur var lagður á vörur inn í Kína frá Bandaríkjunum,“ segir Davíð. „Kína er stærsta markaðssvæðið fyrir vörur Silicor Materials og með 60 prósent tollum á vörur þeirra var þeim einfaldlega kippt út af markaði. Það breyttust allar forsendur, það segir sig sjálft,“ bætir hann við. Fríverslunarsamningur Íslands og Kína réði því miklu um að bandaríska fyrirtækið Silicor Materials ákvað að reisa sólarkísilverksmiðju við Grundartanga.
Tengdar fréttir "Erum að spyrna okkur hressilega frá botninum“ Samningar um tvö stórfyrirtæki í kísiliðnaði voru undirritaðir í dag og eru nú horfur á að fjögur ný kísilver rísi á Íslandi á næstu þremur árum. 28. maí 2014 19:00 67 milljarða króna samningur undirritaður í dag Fulltrúar Thorsil ehf. og bandaríska fyrirtækisins Hunter Douglas Metals undirrituðu nú í hádeginu samning um sölu og dreifingu á kísil frá fyrirhuguðu kísilveri Thorsil í Helguvík. 28. maí 2014 13:11 Telja slys við Grundartanga bara tímaspursmál Forsvarsmenn fyrirtækja á Grundartanga lýsa þungum áhyggjum af vegtengingu Hringvegar við afleggjarann að iðnaðarsvæðinu. Vegamálastjóri telur fulla ástæðu til að skoða vegamótin með umferðaröryggi í huga. 20. júní 2014 07:00 Hvalfjarðarsveit vill 77 milljarða sólarkísilver Silicor Materials hefur óskað eftir ívilnunum vegna sólarkísilverksmiðju sem gæti risið á Grundartanga. Fulltrúar fyrirtækisins eru væntanlegir til landsins í næstu viku. 2. maí 2014 07:00 Silicor fær 35 megavött frá Orku náttúrunnar Verksmiðjan þarf 80 megavött af raforku í fullum afköstum. Viðræður við Landsvirkjun um 45 megavött. Fjármögnun verkefnisins komin vel áleiðis að sögn Arion banka. 16. júlí 2014 10:54 Skapar um 400 ný störf Bandaríska fyrirtækið Silicor Materials hefur ákveðið að reisa sólarkísilverksmiðju á Grundartanga. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að Arionbanki muni annast fjármögnun verkefnisins, og að fyrir liggi viljayfirlýsing um kaup á orku frá Landsvirkjun og Orku Náttúrunnar (ON Power). 15. júlí 2014 22:57 Stjórn Silicor skrifar undir viljayfirlýsingu vegna lóðar á Grundartanga Stjórnarmenn Silicor Materials undirrita í dag viljayfirlýsingu um vilyrði vegna lóðar á Grundartanga. Fyrirtækið horfði áður til Sádi-Arabíu og Kanada. Viðræðum um raforkukaup miðar vel. 28. maí 2014 08:00 Mest lesið Starfsfólk truflað á tveggja mínútna fresti Atvinnulíf Hressilega kaótískir morgnar sem eiga það til að klikka smá Atvinnulíf Frumkvöðlar í áratugi: „Launalaus sjálfboðavinna fyrstu árin“ Atvinnulíf Kalifornía fjórða öflugasta efnahagsríki heims Viðskipti erlent Notendur þurfi að bregðast við vilji þeir ekki að gögn verði notuð Viðskipti erlent Pizzur í stað smurbrauðs á nýrri Króníku Viðskipti innlent ESB sektar Apple og Meta um rúma hundrað milljarða Viðskipti erlent Að komast aftur í vinnugírinn eftir geggjað páskafrí Atvinnulíf Gefur eftir í tollastríði við Kína Viðskipti erlent Ætlar að einbeita sér að Tesla eftir slæmt uppgjör Viðskipti erlent Fleiri fréttir Pizzur í stað smurbrauðs á nýrri Króníku Fjármögnun tryggð fyrir nýrri landeldisstöð Samherja Umræðan einkennist af rangfærslum um ofurhagnað Kaupsamningur undirritaður um Grósku Ísfélagið greiðir út tveggja milljarða arð Breyta Kaffi Kjós í íbúðarhús Reynst betur að kaupa fasteign en hlutabréf Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout Munu opna tvö Starbucks-kaffihús í miðborginni Nýjar íbúðir seljast verr en aðrar vegna stærðar Bærinn vildi húsið en þurfti svo að borga tvöfalt meira Aðalgeir frá Lucinity til Símans Latabæjarnammið vel þekkt um allan heim Ölgerðin ræður tvo markaðsstjóra Íslenskur kauphallarsjóður á markað í Bandaríkjunum Ekkert samtal í gangi milli stjórnvalda og sjávarútvegs VÍS opnar aftur skrifstofu á Akranesi KS fyrstir til að nýta sér nýja varaleið um gervihnetti Jón Guðni tekur við formennsku Algengast að óljósar starfslýsingar valdi togstreitu og gremju Sigurjón Örn tekur við af Sveini hjá Kletti „Þar skeikar milljörðum í vanmati ráðuneytisins“ Hætta við flug til Madeira, Pula, Düsseldorf og Hamborgar Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Um 80 prósent vilja að gjöld útgerða taki mið af raunverulegu aflaverðmæti Álögur ríkisins á bankana lendi að miklu leyti á almenningi Þriggja ára fangelsi og tveggja milljarða sekt Stofnandinn búinn að eignast Mandi á ný Matvælastofnun gerir ekki athugsemdir við kjötvinnslu í Álfabakka Íslandshótel taka að óbreyttu yfir rekstur Nordica og Natura Sjá meira
"Erum að spyrna okkur hressilega frá botninum“ Samningar um tvö stórfyrirtæki í kísiliðnaði voru undirritaðir í dag og eru nú horfur á að fjögur ný kísilver rísi á Íslandi á næstu þremur árum. 28. maí 2014 19:00
67 milljarða króna samningur undirritaður í dag Fulltrúar Thorsil ehf. og bandaríska fyrirtækisins Hunter Douglas Metals undirrituðu nú í hádeginu samning um sölu og dreifingu á kísil frá fyrirhuguðu kísilveri Thorsil í Helguvík. 28. maí 2014 13:11
Telja slys við Grundartanga bara tímaspursmál Forsvarsmenn fyrirtækja á Grundartanga lýsa þungum áhyggjum af vegtengingu Hringvegar við afleggjarann að iðnaðarsvæðinu. Vegamálastjóri telur fulla ástæðu til að skoða vegamótin með umferðaröryggi í huga. 20. júní 2014 07:00
Hvalfjarðarsveit vill 77 milljarða sólarkísilver Silicor Materials hefur óskað eftir ívilnunum vegna sólarkísilverksmiðju sem gæti risið á Grundartanga. Fulltrúar fyrirtækisins eru væntanlegir til landsins í næstu viku. 2. maí 2014 07:00
Silicor fær 35 megavött frá Orku náttúrunnar Verksmiðjan þarf 80 megavött af raforku í fullum afköstum. Viðræður við Landsvirkjun um 45 megavött. Fjármögnun verkefnisins komin vel áleiðis að sögn Arion banka. 16. júlí 2014 10:54
Skapar um 400 ný störf Bandaríska fyrirtækið Silicor Materials hefur ákveðið að reisa sólarkísilverksmiðju á Grundartanga. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að Arionbanki muni annast fjármögnun verkefnisins, og að fyrir liggi viljayfirlýsing um kaup á orku frá Landsvirkjun og Orku Náttúrunnar (ON Power). 15. júlí 2014 22:57
Stjórn Silicor skrifar undir viljayfirlýsingu vegna lóðar á Grundartanga Stjórnarmenn Silicor Materials undirrita í dag viljayfirlýsingu um vilyrði vegna lóðar á Grundartanga. Fyrirtækið horfði áður til Sádi-Arabíu og Kanada. Viðræðum um raforkukaup miðar vel. 28. maí 2014 08:00