Móðurmjólk getur skemmt tennur 26. febrúar 2013 17:00 Hólmfríður segir mæðrum í sjálfvald sett hversu lengi þær séu með börn sín á brjósti. Tíðum næturgjöfum eftir að tennur koma þurfi þó að mæta með góðri tannhirðu því mjólkin sé sæt og liggi á tönnum.
Ráðlagt er að draga úr næturgjöfum barna við átta til tólf mánaða aldur, samkvæmt ráðleggingum Embættis tannlæknis um tannvernd. Árlega eru allt að 200 smábörn, fimm ára og yngri, svæfð vegna alvarlegra tannskemmda af völdum sætra og súrra drykkja að næturlagi. "Um leið og tennur koma í munn smábarna þarf að hafa hugfast að móðurmjólkin er sætur vökvi,“ segir Hólmfríður Guðmundsdóttir, tannlæknir hjá Embætti landlæknis. Embættið bendir foreldrum á að gefa smábörnum vatn um nætur og aldrei sæta eða súra drykki. "Móðurmjólk er vökvi eins og hver annar og við ráðleggjum mjólkandi mæðrum að draga vel úr næturgjöfum um tíu mánaða aldur. Ástæðan er sú að á nóttunni dregur mjög úr munnvatnsflæði og munnvatn er náttúruleg vernd gegn tannskemmdum. Því er varnarkerfi barna ekki í gangi þegar tennur þeirra liggja í sætri móðurmjólk um nætur.“ Hólmfríður segir skilaboð um að móðurmjólk geti skemmt tennur hugsanlega ekki hafa verið nógu skýr. "Móðurmjólk er besta næring sem völ er á fyrir ungbörn en hún hefur fengið að njóta vafans. Umræðan hefur verið lítil og ekki allir á eitt sáttir þegar kemur að neikvæðri umfjöllun um hana. Ég fullyrði hins vegar að eftir tíu til tólf mánaða aldur eigi börn ekki að vera á brjósti að næturlagi.“ Hólmfríður segist vita að mörg börn liggi við hlið móður sinnar um nætur og drekki þegar þau vilja. "Sú venja eykur stórlega hættu á tannskemmdum (e. baby bottle tooth decay) og því mikilvægt að halda tönnunum hreinum því góð tannhirða vegur upp á móti og styrkir tennurnar. Hér á Íslandi sjáum við mjög alvarlegar tannskemmdir hjá börnum yngri en átján mánaða. Að auki hafa skapast enn frekari vandamál vegna siðs sem tíðkast meðal foreldra af erlendum uppruna sem gefa börnum sínum sætt te og safa í pela bæði á nóttu og degi. Hjá þeim börnum sjást mjög alvarlegar tannskemmdir.“ Hólmfríður Guðmundsdóttir, tannlæknir hjá Embætti landlæknis. Mynd/PjeturÍ fimm mánaða skoðun heilsugæslunnar fá foreldrar í hendur Bókina um barnatennurnar. Í bókinni kemur hvergi fram að móðurmjólkin sé skaðleg tönnum en þess í stað minnt á að með því að drekka mjólk í stað súrra drykkja og ávaxtasafa megi koma í veg fyrir skaðlega glerungseyðingu. Sú lesning gæti treyst mjólkandi mæður í vissu um að þær væru að gera börnum sínum gott. "Ráðleggingar um brjóstagjöf að næturlagi hafa fylgt fræðslu í bæklingum og leiðbeinandi efni fyrir starfsfólk heilsugæslustöðva síðastliðin tíu ár. Svo er vafamál hvernig fræðslan hefur skilað sér til foreldra. Hins vegar er ljóst að skerpa þarf á því að móðurmjólkin er sætur vökvi.“ Hólmfríður tók við starfi sínu hjá Embætti landlæknis fyrir áratug og vildi þegar auka fræðslu um hættu á tannskemmdum vegna móðurmjólkur. "Þá mætti ég mismunandi viðhorfum á nokkrum stöðum, einkum meðal þeirra sem halda því fram að börn megi vera nær takmarkalaust á brjósti fram eftir aldri. Tannskemmdir vegna of sætra drykkja smábarna er staðreynd og árlega eru allt að 200 smábörn undir fimm ára svæfð vegna alvarlegra tannskemmda. Það er of mikið og eiga sætir og súrir drykkir stærsta sök en móðurmjólkin líka, enda mörgum óupplýst vandamál. Nálgast má fræðslu og myndbönd sem stuðla að bættri tannheilsu barna á landlaeknir.is og heilsugaeslan.is. Móðurmjólk best fyrir barniðArnheiður Sigurðardóttir segir brýnt að byrja að bursta um leið og fyrsta tönnin sést. Mynd/Arnþór"Góð tannhirða helst í hendur við næringu og því mikilvægt að bursta tennur barns á næturgjöfum vel. Tannskemmd vegna brjóstagjafar er sjaldgæf og því ættu mjólkandi mæður óhikað að halda brjóstagjöf áfram til tveggja ára aldurs eða lengur, eins og Alþjóða heilbrigðisstofnunin mælir með,“ segir Arnheiður Sigurðardóttir, brjóstagjafarráðgjafi, lýðheilsufræðingur og aðjúnkt við Háskóla Íslands. Hún segir næturgjafir mikilvægar fyrir móður og barn. "Móðurmjólkin er næringarrík, tekur lítið pláss í maga og á engan sinn líka þegar kemur að mótefnamyndun og ónæmiskerfi barnsins. Hún heldur fullu næringargildi fyrsta árið og getur verið fimmtíu prósent af næringargildi barna eftir eins árs.“ Arnheiður segir ungbörn ekki kunna á klukku og því kalli þau eftir móðurmjólk af þörf. "Lítið barn með lítinn maga þarf næturgjafir til að vaxa, dafna og þroskast vel. Þá er mjólkandi mæðrum nauðsynlegt að gefa um nætur til að viðhalda mjólkurframleiðslu sinni. Kvöld- og næturgjafir eru tækifæri móður og barns til að vinna upp tengslamyndun og nánd sem smábörn missa af hjá útivinnandi mæðrum. Framlengd brjóstagjöf er því tækifæri til að næra börn og styrkja sjúkdómavarnir þeirra. Fyrir vikið fáum við andlega, líkamlega og tilfinningalega sterkari einstaklinga.“ Sjá meira um kosti brjóstagjafar á brjostagjof.is. Athugasemd við grein (28.2 kl.10.30): Hólmfríður Guðmundsdóttir, tannlæknir hjá Embætti landlæknis, vill koma eftirfarandi á framfæri: “Opinberar ráðleggingar um brjóstagjöf ungbarna hafa ekki breyst og áfram mælt með brjóstagjöf sem einu næringu fyrsta hálfa árið og með öðrum mat til eins árs aldurs og jafnvel lengur. Móðurmjólk hefur vissulega ekki glerungseyðandi áhrif og inniheldur sannanlega efnasambönd sem geta mögulega dregið úr virkni baktería – en séu börn komin með tennur og farin að borða kolvetni á daginn myndast skán á tannyfirborði. Ef þessi skán ekki burstuð af fyrir nóttina geta tannskemmdir myndast og ef ábót er gefin nokkrum sinnum að nóttu veldur það enn frekari hættu á tannskemmdum.”
Mest lesið Foreldrar sextíu barna vilji leikskólastjórann burt Innlent Hrikalega spenntur að spreyta sig á nýjum vettvangi Innlent Ellert B. Schram er fallinn frá Innlent „Ég get horft í augun á ykkur“ Innlent Grjóthörð sparnaðarráð til Kristrúnar með ástarkveðju frá FA Innlent „Það á auðvitað að fara að lögum“ Innlent Fimm ára leyfi frá borginni til að fara á þing Innlent Maðurinn hafi talið sig vera að fara að hitta stúlku á fermingaraldri Innlent Lenti í kófi og ók í veg fyrir tvo vörubíla Innlent Sautján ára máli Amöndu Knox lýkur með sakfellingu Erlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss suðvestur af Klaustri Guðrún íhugar framboð og Guinness-æði skekur íslenska djammið Lýsa yfir miklum vonbrigðum með stöðu viðræðna „Ég get horft í augun á ykkur“ Eldur í bíl í Strýtuseli Valt inn á byggingarsvæði eftir árekstur við strætó Anna, Anna og Sveinbjörn aðstoða ríkisstjórnina Hrikalega spenntur að spreyta sig á nýjum vettvangi Ellert B. Schram er fallinn frá „Það á auðvitað að fara að lögum“ Segir borgina hafa unnið að lausn mála hjá Maríuborg um nokkurt skeið Maðurinn hafi talið sig vera að fara að hitta stúlku á fermingaraldri Boða til allsherjarfundar samninganefnda Kennarasambandsins Lögregla rannsakar tálbeituaðgerð ungmenna Grjóthörð sparnaðarráð til Kristrúnar með ástarkveðju frá FA Lenti í kófi og ók í veg fyrir tvo vörubíla Óttast að íbúar utan Reykjavíkur festist í gistiskýlunum Fimm ára leyfi frá borginni til að fara á þing Foreldrar sextíu barna vilji leikskólastjórann burt Farinn af vettvangi en fannst með áverka stuttu síðar Hús varð fyrir tjóni vegna eldingar Viss um sigurinn en óviss um að komast inn á landsfundinn „Við erum algjörlega komin á endastöð“ „Enn einn áfellisdómurinn yfir stjórnsýslu borgarinnar“ Staðfestir niðurfellingu rannsóknar á blaðamönnunum Áfellisdómur á stjórnsýslu borgarinnar og meintur fjárdráttur Að minnsta kosti þrettán milljónir og „einbeittur brotavilji“ Fleiri skora á Guðrúnu Þau munu vinna úr hagræðingartillögunum Skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita dreng í sturtuklefa Sjá meira