Innlent

Mörg lömb blind eftir öskuna

Hugrún Halldórsdóttir skrifar
Hátt í tuttugu lömb á einum og sama sveitabænum urðu að heimalingum við eldgosið í Grímsvötnum. Þau eru mörg hver blind eftir ösku og þurfa á mikilli umönnun að halda.

Sauðféð á bænum Kálfafelli eitt, rétt austan við Kirkjubæjarklaustur, fór illa út úr gosinu. Margar skepnur eru blindar eftir að hafa fengið ösku í augun og einhverjar urðu úti með þeim afleiðingum að átján lömb misstu eða týndu mæðrum sínum. Heimalingarnir fúlsa við öllu nema volgri mjólk og þurfa á henni að halda fjórum til fimm sinnum á dag. Þetta þýðir að bændurnir Hafdís Huld Björgvinsdóttir og Stefán Björnsson metta um sjötíu til níutíu litla munna á hverjum degi.

„Sum eru náttúrulega blind en önnur ekki. En það er svona erfitt að vita hvernig þeim reiðir af," segir Hafdís.

Hún býst við að heimalingarnir þurfi á mjólkurgjöf að halda þar til um miðjan júní. Til að standa undir eftirspurn er mjólk fengin frá næstu bæjum en einnig notast þau við mjólkurduft.

„Það er svolítið svona strembið að þurfa að gefa þessu öllulen það á reyndar að panta svona fötu með svona túttum á, þá hellir maður í og kennir þeim að drekka þannig," segir Hafdís.

Þó svo að líkurnar væru ekki heimalingunum í hag fækkaði í hópnum þegar fréttastofa var í heimsókn, en tvö lömb fundu móður sína rétt eftir að hafa þegið vænan skammt af mjólk frá bændunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×