Innlent

Naktir Norðlendingar vekja heimsathygli

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bændurnir hafa vakið athygli víða
Bændurnir hafa vakið athygli víða
Þess verður eflaust eitthvað beðið að nekt norðlenskra bænda verði ein af stoðum íslensks útflutnings. Engu að síður vöktu fréttir Vísis af því að bændur fyrir norðan hefðu ákveðið að setja upp leikritið Með fullri reisn og gefa út dagatal svo mikla athygli að fyrirspurnir um dagatalið eru farnar að berast víðsvegar að úr heiminum. Jón Gunnar Þórðarson, leikstjóri sýningarinnar, segir að bændurnir séu himinlifandi yfir móttökunum.

„Eftir þessa frétt á Vísi gerðist þetta mjög hratt allt saman og það er búið að panta dagatalið frá Bandaríkjunum og Kanada líka," segir Jón Gunnar. Það séu ekki endilega Íslendingar sem eru búsettir erlendis sem panti dagatalið. „Vísisfréttin var þýdd á IcelandReview og það voru erlendir fjölmiðlar sem tóku fréttina þaðan og settu á síðuna sína," segir Jón Gunnar til útskýringar á áhuga útlendinga á bændunum. Hann segir að fréttin hafi líka birst í breskum fjölmiðlum.

„Þetta er búið að vera skemmtilegur tími hjá bændunum," segir Jón Gunnar, sem viðurkennir að þeir séu orðnir aðalskemmtiefni á Akureyri og víðar. „Þeir komu á Götubarinn um síðustu helgi og allir vita hverjir þeir eru," segir Jón Gunnar. Hann bætir við að á hverju kvöldi, þegar bændurnir hittist, hafi þeir nýjar sögur að segja af viðtökunum.

Vika er í frumsýningu og Jón Gunnar segir að æfingar gangi vel. Þá munu bændurnir árita dagatölin á Glerártorgi á Akureyri á laugardag milli tvö og fjögur.


Tengdar fréttir

Naktir bændur á Norðurlandi

Bændur í Hörgárdalnum hafa ákveðið að setja upp nýja staðfærða sýningu á verkinu Með fullri reisn, sem kallast Full Monty á frummálinu. Verkið verður frumsýnt í næsta mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×