NASA - hugleiðing Sara Dögg Gylfadóttir skrifar 18. maí 2012 12:25 Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp samning við staðarhaldara NASA og allt bendir til þess að NASA verði ekki starfrækt sem tónleikahús, varð ég að skrifa smá um málið. Ég veit að margt tónlistarfólk grætur það að NASA muni ekki starfa sem tónlistar- og ballstaður. Sjálf er ég ekki tónlistarmaður (þrátt fyrir að syngja í kór!) en ég nýt þess að fara á tónleika og skrifa því sem slík. Ég og maðurinn minn erum mjög dugleg að fara á tónleika og þegar ég veit að ég er að fara á tónleika á NASA hlakka ég alltaf mikið til ekki bara vegna tónlistarinnar heldur elska ég allt við NASA. Í fyrsta lagi er stemningin yndisleg, borðin, stólarnir, sviðið, upplýstu myndirnar af sjávardýrum og sérstaklega bleika mósaík kvennaklósettið (veit ekki hvernig karla wc lítur út en það er örugglega jafn frábært). Í öðru lagi er NASA yndislegur staður í alla staði og það er hrein unun að fara þangað á tónleika. Í þriðja lagi hefur staðurinn sérstöðu, enginn staður kemur í staðinn fyrir NASA eins og Páll Óskar talar um i sinni grein. Persónulega finnst mér alltaf mikil og góð stemning á tónleikum þar og það er mín tilfinning að það sé örugglega mjög gaman að troða upp þar. Í okkar samfélagi er mikið talað um auð, peninga og virði hins og þessa í krónum talið. Í orðinu auður fellst ekki bara skilgreining um krónur og aura heldur einnig er auður t.d. í fólki, mannviti o.s.frv. Annað hugtak um auð er félagsauður (social capital). Þegar talað er um félagsauð er ein merking þess sá auður sem við öll sem hópur höfum skapað saman, oft ósýnilegt en við finnum í gegnum samkennd, gleði og vellíðan og þannig njótum ávaxta þessa auðs sem við höfum skapað saman. Þegar ég fer inn á NASA þá dettur mér þetta hugtak í hug. NASA er ekki bara tónleikahús heldur einnig ballstaður fyrir bæði fullorðna, börn og unglinga og þar finnur maður svo sannarlega fyrir þessum auði sem hefur skapast vegna okkar og með okkur. Ég vil hvetja okkur öll til að huga að þessum auði og samkennd sem við eigum og sköpum saman í samfélaginu okkar. Förum að sjá og virða meira félagsauðinn sem við Íslendingar eigum. Það er mín persónulega skoðun að við missum mikið ef NASA verður ekki til staðar. Eigum við ekki að gera eitthvað í þessu og passa uppá auðinn okkar? Berjumst fyrir NASA! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tengdar fréttir Til borgarfulltrúa Besta flokksins Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Reykjavík að skemmtilegri borg. Í byrjun þessa árs kom fram að til stæði að rífa skemmtistaðinn Nasa og byggja enn eitt risahótelið við einn ástsælasta samkomustað Reykvíkinga, Austurvöll. Þessi áætlun kom fyrst fram fyrir þremur árum síðan en komið var í veg fyrir það þá vegna mikilla mótmæla, m.a. frá tónlistarmönnum. Þegar þessi áætlun var sett fram aftur í byrjun árs vakti það hjá mér ugg í brjósti, en síðan róaðist ég aðeins þegar ég mundi hverjir sætu í borgarstjórn. 16. maí 2012 06:00 Þegar ég missi trúna á mannkyninu Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því fór ég á mína fyrstu bíósýningu, steig í fyrsta sinn á svið, sá mitt fyrsta leikrit, upplifði mína fyrstu tónleika, vann í bingói Þróttar, fór í minn fyrsta skemmtistaðasleik og svo mætti lengi telja. Ég á þaðan margar góðar minningar og eru verðmæti félagsheimila ekki metin til fjár. 18. maí 2012 06:00 Til kjósenda Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borgarstjórnar til þess að standa vörð um persónulega hagsmuni sína eða félaga sinna. 17. maí 2012 06:00 Hótel Godzilla Nasa mun hætta starfsemi sinni 1. júní næstkomandi. Sá vondi draumur er að verða að veruleika. Húseigandinn hefur rift leigusamningi sínum við Ingu á Nasa, en hún hefur staðið vaktina með glæsibrag í rúmlega tíu ár. Inga er ekki á kúpunni og skuldar ekki nokkrum manni krónu. Hún hefur alltaf borgað leiguna fyrst, svo starfsfólki sínu, og látið svo sjálfa sig mæta afgangi. Hún á þakkir og virðingu skilda fyrir sitt starf. 17. maí 2012 06:00 Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp samning við staðarhaldara NASA og allt bendir til þess að NASA verði ekki starfrækt sem tónleikahús, varð ég að skrifa smá um málið. Ég veit að margt tónlistarfólk grætur það að NASA muni ekki starfa sem tónlistar- og ballstaður. Sjálf er ég ekki tónlistarmaður (þrátt fyrir að syngja í kór!) en ég nýt þess að fara á tónleika og skrifa því sem slík. Ég og maðurinn minn erum mjög dugleg að fara á tónleika og þegar ég veit að ég er að fara á tónleika á NASA hlakka ég alltaf mikið til ekki bara vegna tónlistarinnar heldur elska ég allt við NASA. Í fyrsta lagi er stemningin yndisleg, borðin, stólarnir, sviðið, upplýstu myndirnar af sjávardýrum og sérstaklega bleika mósaík kvennaklósettið (veit ekki hvernig karla wc lítur út en það er örugglega jafn frábært). Í öðru lagi er NASA yndislegur staður í alla staði og það er hrein unun að fara þangað á tónleika. Í þriðja lagi hefur staðurinn sérstöðu, enginn staður kemur í staðinn fyrir NASA eins og Páll Óskar talar um i sinni grein. Persónulega finnst mér alltaf mikil og góð stemning á tónleikum þar og það er mín tilfinning að það sé örugglega mjög gaman að troða upp þar. Í okkar samfélagi er mikið talað um auð, peninga og virði hins og þessa í krónum talið. Í orðinu auður fellst ekki bara skilgreining um krónur og aura heldur einnig er auður t.d. í fólki, mannviti o.s.frv. Annað hugtak um auð er félagsauður (social capital). Þegar talað er um félagsauð er ein merking þess sá auður sem við öll sem hópur höfum skapað saman, oft ósýnilegt en við finnum í gegnum samkennd, gleði og vellíðan og þannig njótum ávaxta þessa auðs sem við höfum skapað saman. Þegar ég fer inn á NASA þá dettur mér þetta hugtak í hug. NASA er ekki bara tónleikahús heldur einnig ballstaður fyrir bæði fullorðna, börn og unglinga og þar finnur maður svo sannarlega fyrir þessum auði sem hefur skapast vegna okkar og með okkur. Ég vil hvetja okkur öll til að huga að þessum auði og samkennd sem við eigum og sköpum saman í samfélaginu okkar. Förum að sjá og virða meira félagsauðinn sem við Íslendingar eigum. Það er mín persónulega skoðun að við missum mikið ef NASA verður ekki til staðar. Eigum við ekki að gera eitthvað í þessu og passa uppá auðinn okkar? Berjumst fyrir NASA!
Til borgarfulltrúa Besta flokksins Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Reykjavík að skemmtilegri borg. Í byrjun þessa árs kom fram að til stæði að rífa skemmtistaðinn Nasa og byggja enn eitt risahótelið við einn ástsælasta samkomustað Reykvíkinga, Austurvöll. Þessi áætlun kom fyrst fram fyrir þremur árum síðan en komið var í veg fyrir það þá vegna mikilla mótmæla, m.a. frá tónlistarmönnum. Þegar þessi áætlun var sett fram aftur í byrjun árs vakti það hjá mér ugg í brjósti, en síðan róaðist ég aðeins þegar ég mundi hverjir sætu í borgarstjórn. 16. maí 2012 06:00
Þegar ég missi trúna á mannkyninu Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því fór ég á mína fyrstu bíósýningu, steig í fyrsta sinn á svið, sá mitt fyrsta leikrit, upplifði mína fyrstu tónleika, vann í bingói Þróttar, fór í minn fyrsta skemmtistaðasleik og svo mætti lengi telja. Ég á þaðan margar góðar minningar og eru verðmæti félagsheimila ekki metin til fjár. 18. maí 2012 06:00
Til kjósenda Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borgarstjórnar til þess að standa vörð um persónulega hagsmuni sína eða félaga sinna. 17. maí 2012 06:00
Hótel Godzilla Nasa mun hætta starfsemi sinni 1. júní næstkomandi. Sá vondi draumur er að verða að veruleika. Húseigandinn hefur rift leigusamningi sínum við Ingu á Nasa, en hún hefur staðið vaktina með glæsibrag í rúmlega tíu ár. Inga er ekki á kúpunni og skuldar ekki nokkrum manni krónu. Hún hefur alltaf borgað leiguna fyrst, svo starfsfólki sínu, og látið svo sjálfa sig mæta afgangi. Hún á þakkir og virðingu skilda fyrir sitt starf. 17. maí 2012 06:00
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar