Erlent

Nei nei ÞETTA er upp

Óli Tynes skrifar
Bláu Englarnir sýna listir sínar.
Bláu Englarnir sýna listir sínar. Mynd/AP

Flugsýningar eru vinsælar um allan heim og það þykir sérstaklega tilkomumikið að fá orrustuþotur í heimsókn.

Bæði fljúga þær hratt og með ógnarlegum hávaða, og svo geta þær gert furðulegustu kúnstir. Þar við bætist enn að þær eru yfirleitt nokkrar saman og fljúga mjög nálægt hver annarri.

Eins og á þessari mynd sem tekin var af Bláu Englunum yfir Andrews herflugvellinum í Maryland á dögunum.

Bláu Englarnir eru listflugsveit bandaríska flotans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×