Neitaði að taka við gildum seðli Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 14. maí 2013 11:15 Nýr og endurbættur þúsund króna seðill með nýjum öryggisatriðum var settur í umferð árið 2004.
Afgreiðslustúlka í Krónunni við Bíldshöfða neitaði síðastliðinn laugardag að taka við þúsund króna seðli sem er í fullu gildi. Afgreiðslustúlkan kallaði á samstarfsmann og tilkynnti síðan viðskiptavininum að ekki væri hægt að taka við seðlinum þar sem á hann vantaði silfurlitaða málmþynnu. Aðspurð taldi afgreiðslustúlkan að um falsaðan seðil væri að ræða. Um var að ræða gamlan þúsund króna seðil sem fyrst var settur í umferð 1984 og er enn í fullu gildi samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum. Nýr og endurbættur seðill með nýjum öryggisatriðum var settur í umferð árið 2004. „Fyrst eftir breytingarnar birtum við með skýrum hætti öryggisatriði beggja seðla en nú er látið nægja að undirstrika að öryggisatriðin gildi fyrir þennan nýja og breytta seðil. Það er mjög lítið eftir af gamla þúsund króna seðlinum í umferð,“ segir Stefán Jóhann Stefánsson, upplýsingafulltrúi Seðlabankans.
Mest lesið Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Erlent Alvarlegt bílslys í Öræfum Innlent Grímuskylda á Landspítalanum Innlent Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Innlent Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Erlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Fleiri fréttir Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Sjá meira