Innlent

Neitar öllu í ákæru um sprengjusmíði

Sýndi sig á Facebook Maðurinn birti myndir og myndbönd á Facebook sem gáfu lögreglu tilefni til að ætla að hann væri hættulegur.Fréttablaðið/valli
Sýndi sig á Facebook Maðurinn birti myndir og myndbönd á Facebook sem gáfu lögreglu tilefni til að ætla að hann væri hættulegur.Fréttablaðið/valli
Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur 28 ára Keflvíkingi, sem sat vikum saman í gæsluvarðhaldi á fyrri hluta þessa árs eftir að á heimili hans fundust skotvopn og sprengiefni.

Grunur hafði fallið á manninn eftir að hann birti myndir og myndbönd á Facebook sem gáfu lögreglu tilefni til að ætla að hann væri hættulegur. Á einu myndskeiðinu sást hann sprengja fiskikar í tætlur.

Sérsveitarmenn fóru á heimili hans að kvöldi sunnudagsins 26. febrúar síðastliðins. Samkvæmt ákæruskjali tók maðurinn þar á móti þeim með hníf á lofti og otaði honum að þeim. Þess vegna er hann ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni. Þegar inn var komið fann lögregla hlaðna 22 kalíbera skammbyssu og skotfæri, þrjú eggvopn með löngum blöðum og handjárn.

Þá fannst enn fremur heimagerð rörasprengja með kveikiþræði, sem vó um 460 grömm, og auk þess tveir níu kílóa própangaskútar sem samtals innihéldu 11,7 kíló af gasi, flaska full af stálkúlum, sem voru tveir til fjórir millimetrar að þvermáli, og 90 grömm af púðri sem hann hafði aflað sér með því að taka flugelda í sundur, allt í því skyni að smíða sprengju, að því er fullyrt er í ákærunni.

Þetta er talið varða við vopnalagaákvæði, enda hafi maðurinn hvorki haft leyfi fyrir vopnunum né geymt þau á fullnægjandi hátt.

Að síðustu er hann ákærður fyrir hylmingu, þar sem hann hafi vitað að byssunni hafði verið stolið úr bíl við Brú í Hrútafirði fyrir sex árum.

Maðurinn, sem sat í gæsluvarðhaldi fram í apríl vegna málsins, neitaði alfarið sök við þingfestinguna fyrir Héraðsdómi Reykjaness, án þess að gera frekari grein fyrir þeirri afstöðu sinni.

Árið 2004 var maðurinn dæmdur í fjórtán mánaða fangelsi sem hluti af stórum hópi ungra manna sem var þá kallaður Keflavíkurgengið. Þeir voru dæmdir fyrir fjölda afbrota, en þeir brutust inn, stálu bílum og skotvopnum, seldu þau aftur og neyttu fíkniefna. Alls hlutu átta manns dóm í málinu, en enginn jafnþungan og sá sem nú er ákærður.

Aðalmeðferð í málinu fer fram í Héraðsdómi Reykjaness 30. október næstkomandi.

stigur@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×