Neyðaráætlun um Kvikmyndaskóla 9. september 2011 06:00 Unnið er að bráðabirgðalausn fyrir nemendur Kvikmyndaskóla Íslands, að þeirra ósk. Þá er einnig hugað að framtíðarskipulagi kvikmyndanáms á Íslandi.
Svandís Svavarsdóttir, starfandi mennta- og menningarmálaráðherra, hefur skipað hóp til að finna lausn á málefnum nemenda Kvikmyndaskóla Íslands. Markmiðið er að finna viðeigandi kennslu fyrir þá sem skráðir eru í skólann nú þegar. Nemendur komu að máli við ráðherra á mánudag og óskuðu eftir því að ráðuneytið tryggði námsframvindu þeirra og stæði vörð um gæði námsins. Þeir telja að skólinn geti ekki uppfyllt skuldbindingar sínar við þá og óskuðu því liðsinnis ráðherra. „Nemendur óskuðu eftir innkomu ráðuneytisins við að finna bráðabirgðalausn svo þeir geti haldið áfram námi eins fljótt og kostur er,“ segir Svandís. Starfshópurinn hefur óskað efir upplýsingum frá skólanum um námsframvindu nemendanna. Í framhaldi af því verður leiða leitað til að finna lausnir. Svandís segir að það verði að gerast á allra næstu dögum. „Það er ljóst að þarna er um að ræða neyðaráætlun sem tekur hliðsjón af stöðu þessara nemenda. Við þurfum samhliða þessari ráðstöfun að vinna að stefnumótun um nám í kvikmyndagerð á Íslandi til lengri tíma.“ Svandís segir æskilegt að nýnemar geti skráð sig inn í nýtt námsfyrirkomulag haustið 2012.- kóp
Mest lesið Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Innlent Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Innlent Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Erlent Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Erlent Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Innlent Barinn við barinn en gerandinn farinn Innlent Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Innlent B sé ekki best Innlent Fleiri fréttir Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Tollarnir sem bíta nú þegar, sögulegur fundur og fjársjóður Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Rithöfundur ráðinn til varnarmálaskrifstofunnar Barinn við barinn en gerandinn farinn Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Gerðu langtímasamning um niðurgreidd liðskipti og brjóstaminnkun Dagbjartur aðstoðar Daða Má Innviðaráðherra leggur af stað í fundaferð um samgöngumálin Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Fagnar áformum um mótun atvinnustefnu Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB B sé ekki best Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Stytta opnunartíma Seltjarnarneslaugar: „Er þetta það sem við viljum spara í?“ Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Komu ferðamönnum í sjálfsheldu á Búlandstindi til aðstoðar Fylla í skörð reynslubolta Þurfti rannsóknarvinnu til að finna upplýsingar um bílastæðarukkun Sjá meira