Nú þarf að stöðva hrunið

Fréttablaðið Aðsendar greinar 23. júlí 2010 06:00
Jón Þórisson
arkitekt og aðstoðarmaður Evu Joly
Jón Þórisson arkitekt og aðstoðarmaður Evu Joly
Jón Þórisson skrifar:
Það er mikið í húfi núna, salan á HS Orku til Magma Energy Sweden AB er um það bil að verða að raunveruleika.

Ef ekkert verður að gert þýðir að við afsölum okkur nýtingu mikilvægra auðlinda til næstu 65 ára og jafnvel 130 ára
Helstu rök þeirra sem hlynntir eru málinu eru þau að við höfum sjálf ekki efni á því að eiga nýtingarréttinn, að nauðsynlegt sé að fá erlenda fjárfestingu inn í landið til þess að stuðla að atvinnuuppbyggingu og að þetta ferli allt sé í samræmi við lög og reglur.
En er það svo?

Björk Guðmundsdóttir, Oddný Eir Ævarsdóttir og ég höfum með ábendingu til umboðsmanns Alþingis vakið athygli á að við teljum ástæðu til þess að skoða stjórnsýsluákvarðanir í aðdraganda sölunnar og síðan sjálfan samninginn við Magma Energy Sweden AB.

Það er ljóst að söluferlið hefur verið mjög ógagnsætt og umdeilt.
Rökstuddur grunur er um að hagsmuna almennings hafi ekki verið gætt á fullnægjandi hátt og að málsmeðferð stjórnvalda samræmist ekki lögum og vönduðum stjórnsýsluháttum.

Við bendum umboðsmanni Alþingis á að ákvarðanir sem teknar hafa verið í aðdraganda þessa máls eru teknar af stjórnvaldi og stjórnmálamönum sem fá þungan áfellisdóm í rannsóknarskýrslu Alþingis.

Er það eitt ekki næg ástæða til þess að taka til endurskoðunar ferlið allt? Og þar með talið ákvarðanir Framkvæmdanefndar um einkavæðingu frá 2007 og ákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem úrskurðaði árið 2008 að OR mætti ekki eiga meirihluta í HS Orku? Í þeim úrskurði er meðal annars vísað til bandarískra laga og reglugerða en hvergi vikið að ýmsum undanþáguákvæðum sem hægt væri að beita samkvæmt EES samningnum!

Við teljum ýmislegt athugavert við málsmeðferð og rökstuðning meirihluta nefndar um erlenda fjárfestingu og beinum því til umboðsmanns að taka þessar álitsgerðir meirihluta nefndarinnar til skoðunar. Nefndin byggir niðurstöðu sína m.a á lögfræðiáliti Lagstofnunar Háskóla Íslands sem styrkt er af Samorku – er álit þessarar stofnunar óháð?

Nefndin skautar í áliti sínu framjá greinargerð helsta sérfræðings landsins í Evrópurétti, Elviru Mendez Pinedo, og reifar hvergi rök gegn samþykkt málsins.

Samningurinn við Magma
Við höfum haft samband við nokkar sérfræðinga úr viðskiptalífinu og fengið ábendingar um ýmis atriði í kaupsamninginum sem vert er að staldra við:
Magma keypti nýverið 30 ára nýtingarrétt á jarðavarmaorku í Nevada í Bandaríkjunum. Svo virðist sem Magma borgi þar helmingi hærra verð pr. megawatt en hér.

Nýtingarsamingurinn í Nevada er til 30 ára en hér fær Magma samning til 65 ára með mögulegri framlengingu í önnur 65 ára. Það eru 130 ár!!
Með kaupunum á HS Orku færi Magma í hendurnar fyrirtæki sem rekið er með hagnaði og á 20 milljónir dollara í varasjóði. Nevada er fyrirtæki sem byggja þurfti frá grunni og hafði engan hagnað eða varasjóð.

Fjármögnun Magma er með þeim hætti að uþb 70% kaupverðsins er fjármagnaður með innlendu kúluláni, hluti kaupverðsins er greiddur með bréfum í fyrirtækinu sjálfu og hluti er greiddur með aflandskrónum.
Lánið til Magma er á 1,5% vöxtum. Sjálfur veitir Ross Beaty lán til Magma á 8% vöxtum. Í Icesave samningunum var okkur sagt að útilokað væri að fá lán á lægri vöxtum en 5,5% – á lánum sem þó voru með ríkisábyrgð. Er þetta ekki of gott til að vera satt? Fyrir Magma, ekki fyrir Ísland?
Lánið til Magma er með veði í bréfunum sjálfum.

Upplýsa þarf hvaða skuldbindingar HS Orka mun taka yfir samkvæmt kaupsamningi og hvort ábyrgðum sem nú hvíla á OR eða öðrum opinberum aðilum verður aflétt ef af kaupunum verður. Hversu miklar eru þessar ábyrgðir og hvernig verður þeim aflétt?

Ef Magma verður gjaldþrota þurfum við, að því er virðist, að sækja rétt okkar, ekki til Magma í Kanada, heldur dótturfyrirtækisins í Svíþjóð sem á engar aðrar eignir.

Hrunbragur á sölunni
Höfum við ekki séð þetta allt áður? Í boði sama fólksins og lagði á borð fyrir bankaveisluna?

Það er hrunbragur á sölunni á HS Orku. Það er veislugleði í loftinu. Nú skal grætt. Nú skal grætt á Íslandi. Maður þekkir ljónið á hramminum. Hin tæra snilld birtist ávallt með sama hætti þegar selja skal lykileignir þjóðarinnar:
1. Kaupverðið lánað innanlands
2. Með veði í bréfunum sjálfum
3. Með engum eða óverulegum vöxtum
4. Öðrum kaupendum hafnað án viðræðna
5. Kaupandinn hefur enga þekkingu á rekstrinum sem hann er að kaupa
6. Kaupandinn getur ekki fengið lán í banka og þess vegna verður seljandinn að lána honum

Við höfum bent á að OECD hefur gefið út skýrslu um hvernig best sé staðið að einkavæðingu – þar sem meðal annars er lögð höfuðáhersla á að sala ríkiseigna skili beinhörðum peningum strax. Fjölmörg önnur atriði er bent á sem „best practice" – hvers vegna er ekki einu sinni ráðum OECD fylgt?
Í þessu sambandi má benda á að birtir hafa verið útreikningar sem sýna tap Orkuveitu Reykjavíkur vegna sölu HS Orku til Magma Energy. Um er að ræða útreikninga Birgis Gíslasonar sem birtir voru m.a. á bloggi Láru Hönnu og víðar, Þar kemur fram að heildartap OR vegna sölunnar sé rúmir 9 milljarðar. Þessir útreikningar hafa ekki verið hraktir.

Fyrirfram ákveðinn kaupandi
Samkvæmt fréttum í fjölmiðlum bauð a.m.k eitt annað fyrirtæki í hlutina í HS Orku en ekki hefur verið upplýst hvaða fyrirtæki um var að ræða.
Þá bendum við umboðsmanni á að haft er eftir sendiherra Bretlands á Íslandi að hann hafi komið upplýsingum um áhugasama breska kaupendur á framfæri við íslensk stjórnvöld, en þessir aðilar hafi aldrei fengið nein viðbrögð.

Og hvað með undirbúning stjórnvalda? Langtíma sýn og langtíma áætlun. Er hún einhver? Er búið að setja ákvæði um auðlindagjald í samningana? Nei. Er búið að setja ákvæði sem takmarka verðhækkanir Magma á orku til neytenda? Nei. Er búið að setja ákvæði í samningana sem takamarka tímalengd samningsins? Nei.

Ábyrgð ráðherra og stjórnmálamanna
Svo virðist sem stjórnmálamenn vilji enga ábyrgð bera í þessu mál en vísa í lög og reglugerðir og verja sniðgögnu þeirra – á sama tíma og – sumir þeirra alla vega – harma þetta mál og lofa öllu fögru um að frekari einkavæðing standi ekki til.

En í fréttum í þessir viku kom fram að um áramótin verður Orkuveitu Reykjavíkur skipt upp – en slík uppskipting var fyrsta skrefið í einkavæðingu HS Orku.

Er einkavæðing OR næst á dagskrá eða verður Landsvikjun seld fyrst?

Er ekki nóg komið? Er aldrei nóg komið?

Þetta er vondur díll, samningurinn er of langur, hann skilar sáralitlum peningum inn í landið. Hann byggir á loforðum Ross Beaty, svona einsog þegar Samherji keypti Gugguna á Ísafirði og lofaði að hún færi aldrei. Það leið ekki nema ár. Og þá var hún farin. Orkufyrirtækin hafa verið byggð upp af almannafé og skilað góðum hagnaði fram á síðustu ár – við þurfum að halda þessum auðlindum í opinberri eigu og hirða hagnaðinn sjálf.
Við teljum þetta mál varða hagsmuni þjóðarinnar allrar og við viljum hvetja alla til þess að skrifa undir áskorun okkar til stjórnvalda um að stöðva söluna til Magma og efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíðar stefnu okkar í orkumálum.

Nú þarf að stöðva hrunið. Og það gerir enginn nema þjóðin taki málin í sínar eigin hendur.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Stefnumót að vori

Það vorar og Listahátíð í Reykjavík verður sett í dag. Næstu vikur verður hægt að næra and...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Til kjósenda

Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borgarstjórnar til þess að standa vörð um...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Ekki meira málþóf

Á næstu dögum kemur í ljós hvort Alþingi leggur nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs í þjóðara...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Hótel Godzilla

Nasa mun hætta starfsemi sinni 1. júní næstkomandi. Sá vondi draumur er að verða að verule...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Leitin að samræðugeninu

Eitt stærsta hlutverk stjórnmálanna er að viðhalda samræðu á milli þriggja mikilvægra þátt...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Til borgarfulltrúa Besta flokksins

Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Rey...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Björt framtíð

Öfugt við væntingar hafa mörg okkar, sem sóttum málþing á vegum Háskólans á Bifröst og Ney...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum

Svo ótrúlegt sem það er, þá er það engu að síður staðreynd, að verði frumvörp ríkisstjórna...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Enn um sæstreng

Greinar Magnúsar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirk...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Tannpínusjúklingar nútímans

Undanfarin misseri hefur ástandið í tannheilsumálum þjóðarinnar verið til umræðu á opinber...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Vísindagreinar á mannamáli

Þó nokkur umfjöllun hefur átt sér stað í fjölmiðlum og í fræðasamfélaginu eftir að Magnús ...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Að varðveita sögu allra

Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi og það hefur orðið á...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Á stjórnarandstaðan bara að halda kjafti og vera sæt?

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifaði grein á dögunum þar sem hún kennir stjórnarandstöðu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Landspítali í Fossvog

Við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala í eina stofnun á árinu 2000 var farið...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Komum mynd á mannréttindi

Í dag 16. maí er mannréttindadagur Reykjavíkurborgar en þennan dag árið 2006 var mannrétti...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Skyldan til að tala saman

Síðustu misseri hef ég lesið margar greinar og hlustað á ljósvakamiðla og játa að mig setu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Um "leppshlutverk“ forsetans

Eitt af markmiðum stjórnlagaráðs við gerð tillögu um nýja stjórnarskrá var að afnema "lepp...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 17:30

Stuðningsgrein: Lýðræði er alltaf svarið!

Þá er það komið á hreint – Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveldisins, er byrjaður...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Vinkonan í ESB

Stundum velti ég því fyrir mér af hverju ég búi á Íslandi. Einhvern veginn tekst aldrei að...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Ólína, berðu í borðið!

Ólína Þorvarðardóttir hefur verið einn öflugasti talsmaður þingsins fyrir breyttu fiskveið...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Til varnar heildrænum meðferðum

Sif Sigmarsdóttir hallmælir „óhefðbundnum lækningum” eða heildrænum meðferðum ...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

"Allt að“ ekki neitt

Sjaldan hafa valkostir neytenda verið jafn margir og nú þegar kemur að fjarskiptatengingum...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Má kaupa sér niðurstöðu?

Árið er 2012, rúmum þremur árum eftir hrun, og aldrei hefur ofríki sérhagsmunaaflanna í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Hagur útgerðar og veiðigjald

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna lofaði því í samstarfsyfirlýsingu sinni árið 20...  

Meira
Aðsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Verðvernd er rökleysa

Verðvernd verslana er fullkomin rökleysa. Þeir sem auglýsa verðvernd bjóða nefnilega ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Við látum verkin tala

Það er fagnaðarefni á þriggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar að meirihluti Alþingis skuli s...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ágæti læknir, þiggur þú mútur?

Mánudagskvöldið 30. apríl fjallaði fréttaskýringaþátturinn „Spegillinn“ á RÚV ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ábendingar vegna leiðara

Í leiðara Fréttablaðsins í gær eru settar fram staðhæfingar tengdar gjaldeyrisútboðum Seðl...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Álfar út um allt

Það er stundum talað um að í Hafnarfirði séu fleiri álfar en annars staðar á landinu. Ekki...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Hafið: Vagga lífsins og fjöregg Íslands

Hafið er gullkista Íslendinga. Gjöfulir fiskistofnar umhverfis landið eru þeir sjóðir sem ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 18:10

Óupplýstir spekingar í Silfrinu

Ekki er furða að umræðan um forsetaembættið sé á villigötum þegar ritstjóri stærsta prentm...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Týndur á Paddington

Á fyrsta áratug ævi minnar hvarf pabbi hægt og örugglega inn í myrkur sjúkdóms sem tætti h...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Kostnaður hagsmunaaðila í stjórnmálabaráttu

Eftir baráttu ýmissa vinstrimanna fyrir upplýsingaskyldu og hámörkum á fjárframlög til stj...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 17:01

Hindra gjaldeyrishöft að næsta kynslóð sé étinn út á gaddinn?

Það er kannski tímabært að rifja upp hvers vegna gjaldeyrishöftin voru sett á Íslandi. Síð...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Brandarinn um Boot Camp

Forsvarsmanni líkamsræktarstöðvar Boot Camp sem ætlunin er að taki til starfa í Elliðaárda...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 12:02

Dauðyflin í Samfylkingunni

,,Þú ert bara foringjahollt dauðyfli sem styður leiðtoga þinn í þeirri helreið sem vinstri...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Mér líður ógeðslega illa en fæ ekki tíma hjá geðlækni fyrr en eftir hálft ár

Ég er svo geðveikur þegar ég er í skólanum, ég er bara í skólanum og get ekki gert neitt a...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Lítill ávinningur af skimun fyrir ristilkrabbameini

Árangur af skimun fyrir ristilkrabbameini er lítill séð frá lýðheilsusjónarmiði. Nýjar ran...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Er ekki nóg atvinnuleysi?

Ef Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra fær að ráða, þá fer störfum við íslenska bjórframl...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Best í heimi

Þegar ég reyndi að sigrast á nánast óyfirstíganlegu þvottafjalli heima hjá mér fór ég að h...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Brostnar vonir

Pyngjur landsmanna léttast og færri krónur eru eftir um hver mánaðamót. Norræn velferðarst...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Tveir og hálfur milljarður í sérstakar vaxtaniðurgreiðslur – það munar um minna

Tugþúsundir húseigenda um allt land fengu fjármuni frá ríkissjóði inn á bankareikninga sín...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Þungur kross brotaþola

Ung stúlka tilkynnir nauðgun í miðborg Reykjavíkur. Í umræðum um málið á netinu lætur ungu...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Nú þarf að stöðva hrunið