Nubo fær enga forgangsmeðferð hjá Ögmundi 12. október 2011 12:23
Innanríkisráðherra segir það ekki óeðlilegt að ráðuneytið hafi beðið í fimm vikur með að óska eftir frekar upplýsingum um kínverska fjárfestinn Huang Nubo. Önnur mikilvægari verkefni hafi verið í forgangi í ráðuneytinu. Ögmundur Jónasson innanríkissráðherra var spurður um það í þættinum Bítinu á Bylgjunni í morgun af hverju það hefði tekið ráðuneytið fimm vikur að svara erindi kínverska fjárfestisins Huang Nubo og óska eftir frekari upplýsingum um fjárfestingar hans á Grímsstöðum á Fjöllum. „Við erum að tala um mjög stórt mál, mál sem hefur ekki bara vakið athygli á Íslandi heldur um allan heim. Menn eru að skoða hvað er að gerast í þessum málefnum almennt og þetta er mál sem er mjög umdeilt á Íslandi,“ sagði Ögmundur. „Við ætlum að gera þetta vel, þetta er í stjórnsýslulega farvegi, það er ekki verið að þæfa eða teygja þetta mál á nokkurn hátt. Það er í sínum eðlilega farvegi.“ Ögmundur segir hins vegar gríðarlegt annríki vera á þessum tíma í ráðuneytinu þegar þinghald sé að hefjast og mörg mál í undirbúningi. Einnig taki sum mál alltof langan tíma, til dæmis umsóknir um dvalarleyfi sem hann segist hafa meiri áhyggjur af hvað tíma snertir en málefni Nubo. „Það eru allt of mörg mál í stjórnsýslunni sem taka alltof langan tíma og þar forgangsraða ég öðrum málefnum annarra einstaklinga en þessa kínverska manns.“
Mest lesið Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Kólumbísk fjölskylda hefur verið týnd á Íslandi í tæpa viku Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Fleiri fréttir Kólumbísk fjölskylda hefur verið týnd á Íslandi í tæpa viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Sjá meira