Tónlist

Ný plata Sigur Rósar kemur út í vor

Hljómsveitin Sigur Rós hefur lokið upptökum á nýjustu plötu sinni.
Hljómsveitin Sigur Rós hefur lokið upptökum á nýjustu plötu sinni. fréttablaðið/gva
Hljómsveitin Sigur Rós hefur lokið upptökum á sinni sjöttu hljóðversplötu. Þetta staðfesti hljómborðsleikarinn Kjartan Sveinsson þegar Fréttablaðið hafði samband við hann og bætti hann við að hún ætti að koma út í vor.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er búið að hljómjafna plötuna og er hún væntanleg í verslanir í apríl eða maí. Tónleikaferð er síðan fyrirhuguð í ágúst.

Aðdáendur Sigur Rósar um allan heim hljóta að gleðjast yfir þessum tíðindum því fimm ár eru liðin síðan síðasta hljóðversplata, Með Suð í eyrum við spilum endalaust, kom út við mjög góðar undirtektir. Í millitíðinni gaf söngvarinn Jónsi út sólóplötuna sína Go.

Hljómsveitin gaf á síðasta ári út tónleikaplötuna Inni sem var tekin upp í Alexandra Palace í London árið 2008. Eitt nýtt lag var á þeirri plötu, Lúppulagið.

Fréttablaðið greindi frá því á síðasta ári að tónskáldið Daníel Bjarnason kæmi við sögu á nýju plötunni og verður forvitnilegt að fylgjast með samstarfi hans og Sigur Rósar. -fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.