Lífið

Nýr Trendnet-bloggari

Marín Manda skrifar
Ása Regins er glæsileg.
Ása Regins er glæsileg.
Fagurkerinn og bloggarinn Ása María Reginsdóttir býr á Ítalíu og bloggar um upplifanir sínar. Nú bætist hún í hóp bloggara á trendnet.is.

Fyrir sjö árum kynntist ég Emil, manninum mínum, og flutti með honum til Suður-Ítalíu. Amma og afi voru svo spennt fyrir flutningunum og vildu fylgjast með öllu því sem ég var að gera. Þannig að það má segja að ég hafi byrjað að blogga fyrir ömmu og afa,“ segir Ása María Reginsdóttir.

Eiginmaðurinn í Paradís.
Ása María er gift Emil Hallfreðssyni fótboltakappa og saman búa þau í Verona á Ítalíu, ásamt tveggja ára syni þeirra Emanuel. Hún segir að þau stefni á að búa erlendis næstu árin á meðan Emil spilar með ítalska liðinu Hellas Verona.

„Í dag er ég fyrst og fremst að styðja Emil í því sem hann er að gera en þetta er ótrúlega flottur skóli fyrir lífið þar sem maður nær að víkka sjóndeildarhringinn ansi mikið. Ég ætla að njóta þessa lífs á meðan það er.“

Emanuel ferðast mikið með mömmu sinni og pabba.
Bloggið segir hún hafa breyst hægt og rólega með tímanum en mikilvægt sé að deila einhverju jákvæðu sem gefur lífinu lit í hversdagsleikanum. „Ég blogga bara um það sem mér finnst sjálfri skemmtilegt og fallegt. Ég deili mjög oft hugmyndum frá nýjum stöðum enda ferðumst við mjög mikið.“ 

Ása María er að læra ítölsku og segist gjarnan spyrja heimamenn um nýja og spennandi staði til að upplifa. Í dag bætist hún í hóp skemmtilegra bloggara á Trendnet.is og segist leggja metnað í bloggið sitt sem aldrei fyrr. Fylgist með Ásu Maríu á asaregins.com.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×