Innlent

Nýtt tilboð fylgi hótellóð með Perlunni

Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson, forseti borgarstjórnar, segir að þeir sem átt hafi hæsta tilboð í Perluna hafi aðeins gert fyrirvara um arðsemi kaupanna. Allir sem tekið hafi þátt í útboðinu hafi verið með einhverja fyrirvara.

Eins og fram hefur komið áttu aðilar á sviði ferðaþjónustu og húsbygginga hæsta tilboðið og er Garðar Vilhjálmsson lögmaður í fyrirsvari fyrir þá. Þeir hafa frest til 31. mars til að meta arðsemi kaupanna. Þeir hafa hug á að breyta nýtingarmöguleikum á lóðinni og reisa þar hótel.

„Það má alveg velta því fyrir sér hvort það þýddi nýtt söluferli ef þarna ætti að selja Perluna ásamt hótellóð, það er bara allt annað mál. Orkuveitan var að auglýsa Perluna til sölu,“ segir Dagur.

Dagur segir að í þessu felist ekkert loforð af hendi Orkuveitunnar um að beita sér fyrir breyttu skipulagi á svæðinu. Hann segir því ekki verða rumpað af að breyta skipulagi, verði slíkt ákveðið. Engin ákvörðun hafi verið tekin um það og sjálfur vill hann leyfa málinu að klárast áður en hann getur í eyður. Málið sé ekki komið inn á borð borgarráðs eða borgarstjórnar. Aðili úti í bæ hafi fengið tíma til að skila inn fullgildu tilboði.

„Orkuveitan er ekki búin að taka við tilboðinu vegna þess að það er með fyrirvörum. Orkuveitan segir ekki meira en það að við skulum gefa ykkur tíma til að vita hvort þið viljið standa við tilboðið án fyrirvara. Í því felst samkvæmt mínum skilningi ekkert loforð or hvorki um að beita sér fyrir breytingum á skipulagi né neinu öðru. Hvað þá að selja þetta með einhverjum byggingarrétti.“- kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×