Ögmundur er andvígari ESB aðild en áður Boði Logason skrifar 5. september 2010 14:09 Ögmundur Jónasson nýr innanríkisráðherra landsins.
Ögmundur Jónasson nýr innanríkisráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var gestur í Silfri Egils í dag. Þar sagðist hann meðal annars vera andvígur því að viðræðuferlið við Evrópusambandið sé að breytast í aðlögurnarferli. Hann sagðist einnig hafa hitt Evu Joly í fyrrakvöld. Hann var spurður að því að ef það kæmi fram tillaga á alþingi um að hætta aðildarviðræðum við Evrópusambandið, hvað hann myndi þá gera? „Ef það væri greitt atkvæði um þessa tillögu núna myndi ég gera það sama og ég gerði vorið 2009, þá samþykkti ég." Hann sagðist hins vegar vera sammála Jóni Bjarnasyni í því að viðræðuferlið sé farið að þróast í átt að aðlögunarferli. „Og því er ég andvígur, því ég greiddi atkvæði með viðræðum við sambandið," sagði Ögmundur sem vill að þjóðin eigi að fá að ákveða, eftir að samningur frá sambandinu liggi á borðinu. Þá sagðist hann vera andvígari aðild að ESB en áður. Ögmundur sagðist einnig hafa hitt Evu Joly í fyrrakvöld og spjallað við hana um rannsóknina á hruninu. „Við fórum yfir þessi mál. Aðkoma hennar, að þessum málum og rannsókn, hefur verið gríðarlega mikilvæg. Menn fundu það að með aðkomu hennar var greinilegt að stjórnvöldum var alvara til að gera allt sem til stæði til að rannsaka málin ofan í kjölinn. Hún hefur haft mikil áhrif og mótað þetta starf og tekið virkan þátt í því." Hann sagði einnig að hún sé sátt með embætti sérstaks saksóknara. „Hún lofar sérstakan saksóknara og því fólki sem vinnur þarf af dugnaði og krafti. Eftir samtalið sem ég átti við hana þá er hún ekki að fara frá okkur í neinu fússi," sagði Ögmundur.
Mest lesið Sex fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys í Hörgársveit Innlent Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Innlent Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Innlent Tuttugu og fimm stúlkna saknað úr sumarbúðum vegna flóða Erlent Lögregla hleypti manni inn sem hafði læst sig úti Innlent Minnst þrettán látnir og tuttugu barna saknað eftir flóð í Texas Erlent Sósíalistum bolað úr Bolholti Innlent Nýtt bankaráð Seðlabankans skipað Innlent Sambýliskonan sem sá allt og bróðirinn sem þekkti ekki fjölskylduna Innlent „Þá fylgir það börnum í gegnum skólakerfið og út í samfélagið“ Innlent Fleiri fréttir Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Lögregla hleypti manni inn sem hafði læst sig úti Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Sex fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys í Hörgársveit Inga mundaði skófluna við Sóltún „Þá fylgir það börnum í gegnum skólakerfið og út í samfélagið“ Nýtt bankaráð Seðlabankans skipað Sósíalistum bolað úr Bolholti Sýknaður af kæru Samtakanna 78 um hatursorðræðu Lokametrar, bútasaumur og Starbucks Veiðigjaldið aftur í nefnd og viðræður komnar á lokametra Lára snýr sér að kynningarstörfum fyrir HR Bætti þúsund tonnum í strandveiðipottinn Skellt upp úr í þingsal þegar ráðherra reyndi að mynda hjarta Rúv vildi Ísraelsmenn burt en þeir sluppu með skrekkinn í bili Lögðu hald á mikið magn fíkniefna og fleiri milljónir Eiríkur, Eyvindur og Þorbjörg sækjast eftir dómaraskikkjunni Samfylking tekur aftur fram úr Sjálfstæðisflokki Skoða málið en hafa ekki tekið endanlega ákvörðun um aðgerðir Stór ferðahelgi framundan og bæjarhátíðir víða um land Skjálfti að stærð 3,6 í Bárðarbungu Þingmenn upplitsdjarfir Öðrum þeirra handteknu sleppt úr haldi Þokast í samkomulagsátt á þingi Sakfelldur en ekki gerð refsing fyrir að bana móður sinni Tveir handteknir eftir húsleit í Laugardal og Kópavogi Bandaríska sendiráðið elur á ótta við hælisleitendur og útlendinga Vonast til að samkomulag náist innan skamms, vonandi í dag Sambýliskonan sem sá allt og bróðirinn sem þekkti ekki fjölskylduna Engar fréttir af þinglokum en veiðigjöldin ekki á dagskrá í dag Sjá meira