Ógnvænleg áhrif kláms á réttindi barna 26. október 2012 06:00 Sex ára telpa lýsir því hvernig 12 ára gamall frændi hennar beitti hana kynferðislegu ofbeldi síendurtekið: „Hann gerði alltaf það sama nema þegar hann lærði eitthvað nýtt af myndunum eins og að binda mig." Þessi lýsing er meðal þess sem kom fram í máli Þorbjargar Sveinsdóttur, sérfræðings hjá Barnahúsi, á ráðstefnu um áhrif kláms sem haldin var af Lagadeild Háskóla Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytinu, velferðarráðuneytinu og innanríkisráðuneytinu 16. október sl. Hjá Barnahúsi eru skýr merki þess að klám sé farið að hafa bein áhrif á kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Sigrún Hjaltalín hjá ákærusviði lögreglunnar tók í sama streng og sagði embættið sjá greinileg áhrif kláms á ofbeldisbrot þar sem börn og ungmenni ættu oftar en ekki í hlut. Þetta eru börn sem þekkja ekki mörkin á því hvað er eðlilegt og óeðlilegt í samskiptum. Klám og aukið aðgengi að grófu klámi er líka greinanlegt í starfi Landspítalans líkt og fram kom nýlega í viðtali Morgunblaðsins við Eyrúnu Jónsdóttur, verkefnisstjóra neyðarmóttöku Landspítalans. Frá því að neyðarmóttaka nauðgana opnaði árið 1993 segir Eyrún áhrifa kláms á kynferðisofbeldi gæta með sífellt skýrari hætti. Fleiri ungir gerendur komi nú við sögu, fyrirmyndirnar komi úr klámi og oft á tíðum sé ofbeldið myndað og tekið upp. Nú séu fleiri en einn gerandi í um 20% tilfella sem er mun meira en áður. Skilaboðin eru skýr. Klám ógnar réttindum barna, velferð þeirra og heilsu með beinum hætti. Þegar slík skilaboð koma frá lykilstofnunum samfélagsins er óhætt að segja að allar viðvörunarbjöllur ættu að vera komnar í gang og vert að staldra við og ræða í alvöru hvernig samfélagið eigi að bregðast við. Baráttukonan Gail Dines vakti mikla athygli á málþinginu þegar hún sagði frá rannsóknum sínum á því klámefni sem ríkjandi er á almennum markaði í dag. Sú frásögn lét engan ósnortinn. Það klámefni sem ríkjandi er einkennist af ofbeldi og stækri kvenfyrirlitningu. Fullorðnir eru látnir líta út eins og börn til að þjóna eftirspurn eftir barnaklámi sem er bannað með lögum í mörgum ríkjum og ströng viðurlög liggja við framleiðslu á slíku efni. Engu að síður er barnaklám enn framleitt og klámefni þar sem fullorðnir sjást í gervi barna má finna víða í samfélaginu. Klám hefur verið bannað á Íslandi í marga áratugi og var erindi Jóns Þórs Ólasonar um skilgreiningu hugtaksins kláms í íslenskum lögum og dómaframkvæmd mjög athyglisvert. Jón Þór rakti hvernig íslenskir dómstólar hafa sakfellt á grunni 210. greinar hegningarlaga um dreifingu kláms í mörgum tilfellum og var niðurstaða hans að raunar væri ekki nein réttaróvissa varðandi klám. Það er bannað að dreifa og selja klám á Íslandi samkvæmt lögum og hefur það verið staðfest fyrir dómstólum. Því er mjög umhugsunarvert að ekki hefur verið sakfellt samkvæmt þessari grein í yfir 10 ár. Ekki er það vegna óskýrra laga eða vegna skorts á klámi í umferð. Nýlegar íslenskar rannsóknir sýna að 75% drengja horfa reglulega á klám.¹ Um 70% barna segja foreldra sína aldrei sitja hjá sér þegar þau eru á netinu. Getur verið að foreldrar þessara barna viti ekki hvað börnin þeirra aðhafast á netinu? Getur verið að foreldrar þessara drengja og stúlkna viti ekki hvers konar klám er framleitt í dag og hversu langt kvenfyrirlitningin og ofbeldið gengur? Ætli foreldrar þessara drengja viti hvaða áhrif áhorf kláms hefur á viðhorf drengja til kynjahlutverka, kynlífs og kvenna almennt? Áhrifa kláms og klámvæðingar gætir víða og áhrifin á sjálfsmynd stúlkna er nokkuð sem vert er að velta fyrir sér. Í klámi er hlutverk kvenna skýrt. Þær eru undirgefnar og hlutverk þeirra og líkama þeirra er að veita þjónustu á meðan hlutverk drengja er að vera ráðandi og beinlínis ofbeldisfullir. Kynjamyndir klámsins endurspeglast svo í dægurmenningu og síast beint inn í auglýsingar, kvikmyndir, sjónvarpsþætti, tónlistarmyndbönd og tísku. Varningur og klæðnaður sem kyngerir börn verður æ vinsælli eins og umboðsmaður barna hefur ítrekað bent á. Rannsóknir sýna að stúlkum í grunnskólum líður almennt verr en drengjum. Þetta kemur t.d. sterklega fram í niðurstöðum rannsóknarinnar Ungt fólk á Íslandi sem lögð er fyrir í 9. og 10. bekk árlega. Nýjustu niðurstöður sýna að allt að 20% stúlkna líður oft eða nær alltaf illa og 10% drengja líður oft eða nær alltaf illa. Þessi munur á sjálfsmynd á milli kynja er óásættanlega mikill og er virkilega umhugsunarverður. Forvarnir og fræðsla til barna og ungmenna um klám og ofbeldi er á ábyrgð okkar allra. Hér á landi er enginn einn aðili sem ber ábyrgð á því að börn fái fræðslu um ofbeldi. UNICEF á Íslandi hefur lagt það til að hérlendis verði sett saman einhvers konar nefnd, ráð eða stofnun sem beri ábyrgð á því að öll börn fái fræðslu um ofbeldi, að ábyrgð og skilvirk samfélagsleg umræða skapist um ofbeldi og hvernig varna megi því að börn verði fyrir því. Hér á landi starfa fjölmargir aðilar að forvörnum og almennt að málefnum barna. Er ekki tími til kominn að aðgerðir séu samræmdar og að fólk taki höndum saman í baráttu gegn ofbeldi gegn börnum? ¹ Nordic Youth Research, bls. 86. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Skoðanir Mest lesið Halldór 27.07.2024 Halldór Baldursson Halldór Glútenlaust nesti - djöfulsins lúxus! Anna Gunndís Guðmundsdóttir Skoðun ÉG ÞORI! Inga Sæland Skoðun Hæstvirtur forsætisráðherra Opið bréf til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar Kári Stefánsson Skoðun Færeyingar vissulega til fyrirmyndar Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Carnivore: Kransæðastífla og skínandi fínir kviðvöðvar? Guðrún Nanna Egilsdóttir ,Dögg Guðmundsdóttir Skoðun Pawel og bronsið Ragnar Þór Pétursson Skoðun Stýrivextir verða að lækka Fjóla Einarsdóttir Skoðun Hvar endar þetta? Reynir Böðvarsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Scheving Skoðun Skoðun Skoðun Færeyingar vissulega til fyrirmyndar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Glútenlaust nesti - djöfulsins lúxus! Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar Skoðun ÉG ÞORI! Inga Sæland skrifar Skoðun Hver er hún þessi drusla? Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Börn eða bissness Bryndís Jónsdóttir skrifar Skoðun Carnivore: Kransæðastífla og skínandi fínir kviðvöðvar? Guðrún Nanna Egilsdóttir ,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Pawel og bronsið Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Stýrivextir verða að lækka Fjóla Einarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Scheving skrifar Skoðun Hvar endar þetta? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Höfðu algerlega rétt fyrir sér Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Íslenskar getraunir og ólögleg veðmálafyrirtæki Pétur Hrafn Sigurðsson skrifar Skoðun Hættustig Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Minnkandi ábati stýrivaxta á verðbólgu Aron Heiðar Steinsson skrifar Skoðun Hún var kölluð drusla Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Til fyrirmyndar? Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Tölum endilega íslensku, takk Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Les(mis)skilningur Miðflokksmanna Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Kennarinn sem breytti lífi þínu Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tímabært að stokka spilin og gefa upp á nýtt Maarten Haijer skrifar Skoðun Cut The Crap! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Hvað finnst þér? Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Víðátta og margbreytni hins sjötta skilningarvits Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þegar kennarinn verður dómari Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Tíminn vinnur ekki með þeim Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Frestun á afgreiðslu Samgönguáætlunar er fagnaðarefni Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Tvíeggja tækni: Hvernig má nýta stafræna tækni í kennslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Blekking goðsagna Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Í sambandi við Suðurnesin Steinunn Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Fyrirhyggja er besta vörnin - vegna CrowdStrike atviksins 19. júlí 2024 Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
Carnivore: Kransæðastífla og skínandi fínir kviðvöðvar? Guðrún Nanna Egilsdóttir ,Dögg Guðmundsdóttir Skoðun
Skoðun Carnivore: Kransæðastífla og skínandi fínir kviðvöðvar? Guðrún Nanna Egilsdóttir ,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Tvíeggja tækni: Hvernig má nýta stafræna tækni í kennslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Fyrirhyggja er besta vörnin - vegna CrowdStrike atviksins 19. júlí 2024 Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Carnivore: Kransæðastífla og skínandi fínir kviðvöðvar? Guðrún Nanna Egilsdóttir ,Dögg Guðmundsdóttir Skoðun