Óheimilt að flytja SigurWin úr landi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. júlí 2013 11:39 Guðbjörg Gunnarsdóttir með gullfiskinn SigurWin. Mynd/Facebook
Gullfiskurinn SigurWin er á leið til Malmö þar sem ekki fékkst heimild til að flytja hann úr landi. Til stóð að SigurWin yrði fluttur til Kaupmannahafnar þar sem sjúkraþjálfarinn Erla Hendriksdóttir býr, eins og greint var frá í Vísi í morgun. „Hann er heill á húfi, blessaður. Til stóð að hann færi til Kaupmannahafnar þar sem Erla Hendriksdóttir sjúkraþjálfari býr en þá komumst við að því að það mátti ekki,“ segir Ómar Smárason, fjölmiðlafulltrúi KSÍ, við Vísi. „Við vorum í sambandi við sóttvarnarfulltrúa sem tjáði okkur að það væri ekki heimilt að flytja hann úr landi. Hann fór því til Malmö í fylgd Söru Bjarkar [Gunnarsdóttur] og Þóru Bjargar [Helgadóttur] þar sem hann fer í gæludýrabúð.“ „Ég á von á því að gæludýrabúðir í Malmö munu slást um þennan fisk sem er orðinn frægur í Svíþjóð. Hann hlýtur að fá algjöra stjörnumeðferð.“ Í morgun var greint frá því að kvennalandsliðið hefði verið kært fyrir dýraníð. Bæði vegna þess að hann var hafður í of lítilli krukku auk þess sem talið hafði verið að honum hefði verið sturtað í klósettið. Svo var þó ekki. Ómar segir að fjölmiðlafárið í kringum SigurWin hafi verið engu líkt. „Ég hef fengið ótrúlega mörg símtöl frá sænskum fjölmiðlum. Ein sjónvarpsstöðin fór meira að segja fram á að fá mynd af honum til að sýna að hann væri enn á lífi. Þetta hefur verið með ólíkindum.“
Mest lesið Lést sex dögum eftir að hafa orðið meistari Sport Gamli maðurinn lét Littler svitna Sport Ein skærasta stjarna NBA tefldi við fólk úti á götu Körfubolti Sara Björk jafnaði tvisvar fyrir Al-Qadisiya Fótbolti Atalanta missteig sig eftir ellefu sigra í röð Fótbolti Cecilía í liði ársins Fótbolti Ráku annan þjálfarann á tímabilinu Fótbolti Segir Hákon betri en Flekken: „Þetta lék bara í höndunum á honum“ Enski boltinn „Ég er einum heimsmeistaratitli frá því að jafna ferilinn hans“ Sport Harmur hrokagikksins Haaland Enski boltinn Fleiri fréttir Atalanta missteig sig eftir ellefu sigra í röð Sara Björk jafnaði tvisvar fyrir Al-Qadisiya Cecilía í liði ársins Inter á toppinn eftir sigur á Sardiníu „Vonandi færir nýja árið okkur titla“ Ráku annan þjálfarann á tímabilinu Salah, Son og De Bruyne gætu farið frítt næsta sumar Gæti þurft að fylla vörnina af miðjumönnum Segir Hákon betri en Flekken: „Þetta lék bara í höndunum á honum“ Saka búinn í aðgerð og verður frá í meira en tvo mánuði Tugmilljónakostnaður bíður Víkinga Hákon 21. Íslendingurinn til að spila í efstu deild á Englandi Hákon kom inn á og hélt hreinu í fyrsta úrvalsdeildarleiknum Ronaldo segir að storminn muni lægja undir stjórn Amorim Skytturnar aftur upp í annað sæti eftir sigur gegn nýliðunum Enn eitt skráningarvesenið hjá Börsungum Veit að starfið gæti verið í hættu ef liðið fer ekki að vinna Freyr einnig í viðtal og einn erlendur Þrír boðaðir í viðtal: Víkingar gáfu KSÍ grænt ljós á að ræða við Arnar Emilía til Leipzig Skilaboð frá Klopp minntu hann á áfangann: „Við elskum hann“ „Ég var að skjóta“ Víkingur má ekki spila í Kópavogi og leitar vallar erlendis Harmur hrokagikksins Haaland Eftirmaður Amorims rekinn eftir átta leiki City ætlar að kaupa í janúar Gary sem stal jólunum Liverpool hefur áhuga á framherja PSG Amorim hefur ekki hugmynd um hversu lengi hann verður að laga United Ættingi Endricks skotinn til bana Sjá meira