Innlent

Ók á þrjá bíla og hljóp í burtu

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Ökumaður silfurgrárrar BMW-bifreiðar stakk af eftir að hann ók á þrjá bíla við gatnamót Kringlumýrabrautar og Háaleitisbrautar.

Bifreið hans hafnaði utan vegar og hljóp ökumaðurinn í burtu að sögn sjónarvotta. Að þeirra sögn eru bílarnir mikið skemmdir. Maðurinn var þó handtekinn skömmu síðar og er grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna.

Ekki urðu alvarleg slys á fólki, að sögn lögreglu.

Ragnar Dagur, tökumaður Stöðvar 2, var á staðnum.

Lögregla og sjúkrabílar eru nú á vettvangi.vísir/böddi
Bílarnir eru mikið skemmdir.vísir/böddi



Fleiri fréttir

Sjá meira


×