Ólafur Darri hleypur til styrktar veikri vinkonu Kristján Hjálmarsson skrifar 14. ágúst 2013 12:08 Ólafur Darri ætlar að hlaupa til styrktar vinkonu sinni Sunnu Valdísi.
Ólafur Darri Ólafsson leikari ætlar að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Sunnu Valdísi Sigurðardóttur sem er eini AHC-sjúklingurinn sem greindur hefur verið á Íslandi. „Ég verð fertugur á þessu ári og mig langaði að láta eitthvað gott af mér leiða. Mér finnst Reykjavíkurmaraþonið náttúrulega bara vera snilld. Maraþonið og Menningarnótt koma upp á sama dag og ég vona að við getum breytt þessum degi í góðgerðardag - þar sem við látum öll eitthvað af hendi rakna til góðra mála,“ segir leikarinn góðkunni. Ólafur Darri kynntist Sunnu Valdísi og fjölskyldu hennar fyrir nokkrum árum. „Pabbinn hennar hringdi í mig fyrir nokkrum árum og sagði mér að þau væru oft að klippa út myndir úr blöðum. Sunna vildi alltaf vera að klippa út myndir af mér og það kom foreldrum hennar dálítið á óvart því ég var frekar ótilhafður á þessum myndum og hún var yfirleitt smeyk við ótilhafða menn,“ segir Ólafur Darri og hlær. „Foreldrar hennar og eldri bróðir vilja allt fyrir hana gera. Pabbi hennar hringdi því í mig bauð mér í kaffibolla. Úr því varð vinátta sem hefur enst okkur öll þessi ár.“Getur lamast í þrjár vikur Sjúkdómur Sunnu Valdísar, sem er sjö ára, lýsir sér með köstum sem svipar til flogakasta en í kjölfar kastana lamast hún öðru megin í líkamanum. Lömunin getur staðið yfir í eina klukkustund og allt upp í þrjár vikur - allt eftir tíðni og styrkleika kastana. Sunna getur fengið mörg köst á dag, marga daga í röð - allt upp í 18 daga. Eftir slíkar hrynur er Sunna alveg lömuð og þarf á mikilli endurhæfingu að halda. Sjúkdómurinn hefur meðal annars áhrif á gang, fínhreyfingar, talþroska og almennan þroska. Ólafur Darri á vart orð til að lýsa því hversu gott fólk stendur að baki Sunnu Valdísi. „Ég veit ekki alveg hvernig á að orða þetta. En það er manni þarft að kynnast fólki sem hefur einhvern veginn þurft að setja sig í annað sætið svo lengi. Það er bara þannig að ef einhver sem þú elskar meira en allt verður fyrir áfalli í lífinu verður þú að fórna ýmsu til að hjálpa þeim að þetta gangi upp. Ég er nú bara að reyna að styðja þau í því. Þetta er svo yndislegt fólk að manni þykir ósjálfrátt vænt um það,“ segir Ólafur Darri.Búinn að safna 440 þúsund Leikarinn setti sér það markmið að safna einni milljón króna í hlaupinu. Hann er þegar kominn upp í rúmar 440 þúsund krónur þegar tæpar tvær vikur eru í hlaup. „Mér finnst bara æðislegt að fólk sé tilbúið að leggja manni lið á þennan hátt. Mér finnst það svo stórkostlegt. Ég gerði ráð fyrir engu en finnst yndislegt hvað fólk hefur tekið vel í þetta.“ Ólafur Darri er þekktur fyrir eitthvað allt annað en afrek sín á íþróttasviðinu. Hann segist þó vera duglegur að fara í göngutúra en hefur þó ekki náð að æfa sem skildi fyrir hlaupið. „Ég hef labbað og skokkað lengri vegalengdir en þetta og mér finnast tíu kílómetrar vel viðráðanlegir. Ég hefði haft meiri áhyggjur ef ég væri að fara 21 kílómetra,“ segir leikarinn. „Ég hef nú ekki hlaupið mikið í gegnum tíðina en hef mjög gaman af því að fara út í göngutúra og geri mikið af því. Ég ætla að reyna að labba þetta og skokka.“„Hugsum um einhverja aðra en okkur sjálf“ Þetta er í fyrsta skipti sem Ólafur Darri tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu en hann telur líklegt að hann muni taka þátt á hverju ári héðan í frá. Hann ætlar þó ekki að keppa við tímann í ár. „Ég hlakka bara svo til að hitta allt þetta fólk sem tekur þátt í þessu hlaupi og ætla fyrst og fremst að njóta þess,“ segir Ólafur Darri sem vonast til að dagurinn verði tileinkaður góðgerðarmálum. „Eins og ég segi þá vonast ég til að þetta verði svona dagur þar sem við hugsum um einhverja aðra en okkur sjálf. Mér sýnist reyndar Íslendingar hafa tekið vel í það og það hafa safnast fullt fullt af peningum. En maður leiðir líka kannski hugann að því hvað maður er ótrúlega heppinn og þakklátur fyrir að þurfa ekki sjálfur á aðstoð halda.“
Mest lesið „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Lífið Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Lífið Stjörnufans í sumarselskap Lífið Typpi í einu gati, tæki í öðru Lífið Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Lífið Jói Fel ástfanginn, trúlofaður og fluttur í Hveragerði Lífið Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Lífið Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Lífið Arnór Ingvi og Andrea skinu skært í sænsku konungshöllinni Lífið Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Lífið Fleiri fréttir „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Hilmir Snær og Vala eiga von á stúlku Stjörnufans í sumarselskap Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Arnór Ingvi og Andrea skinu skært í sænsku konungshöllinni Sjáðu þrjátíu sekúndur af atriði VÆB í Eurovision VÆB opnar verslun í Kringlunni Reyndi við þrjár milljónir Ný heimildarmynd Attenborough sýnir eyðileggingu í höfum jarðar Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Logi og Hallveig keyptu hús í 101 Jói Fel ástfanginn, trúlofaður og fluttur í Hveragerði Háar hæðir og lágar lægðir Justins Bieber Fleiri Eurovision-farar vilja Ísrael úr keppni Typpi í einu gati, tæki í öðru Ný stikla úr GTA VI Allt til alls til að kenna björgun mannslífa Daði Freyr og Árný keyptu einbýli á 86 milljónir Sígild sumarterta að hætti Dana Verzló vann MORFÍs Héldu upp á eins árs afmæli Heiðdísar Emblu Sjá meira