Viðskipti innlent

Olían gæti þurrkað út skuldir Íslendinga

Kristján Már Unnarsson skrifar
Þremur sérleyfum hefur verið úthlutað til olíuvinnslu á Drekasvæðinu.
Þremur sérleyfum hefur verið úthlutað til olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Kort/Eykon Energy.

Norska „Dagbladet“ segir í fréttaskýringu um Drekasvæðið að olían geti gert Íslendinga skuldlausa, og gott betur. Blaðinu reiknast til, út frá mati Eykons Energy og Olíustofnunar Noregs, að olía á norsk-íslenska Jan Mayen-svæðinu sé um 6.700 milljarða norskra króna virði, miðað við núverandi olíuverð. Það jafngildir um 125 þúsund milljörðum íslenskra króna, eða sem nemur 220-földum fjárlögum íslenska ríkisins.

Umfjöllun blaðsins hefur vakið athygli einkum á vestnorræna svæðinu og hafa netmiðlar bæði á Grænlandi og í Færeyjum vitnað í hana um helgina, þar á meðal Arctic Journal, sem er alþjóðleg útgáfa á vegum grænlenska blaðsins Sermitsiaq. Fleiri norskir miðlar hafa einnig fjallað um málið, eins og Aftenposten og Stavangeravisen.

Í greininni er fjallað um olíuútboð Íslendinga og Jan Mayen-samkomulagið frá árinu 1981, sem veitir Norðmönnum rétt til 25% þátttöku. Olíu- og orkumálaráðuneyti Noregs segist í svari til blaðsins hafa nýtt þann rétt til að tryggja norska hagsmuni. Því er lýst hvernig jarðfræði svæðisins eigi sér hliðstæðu í Noregshafi og við Austur-Grænland.

Rætt er við Heiðar Má Guðjónsson, stjórnarformann Eykons Energy. Vitnað er til fyrirlesturs sem Þórarinn Sveinn Arnarson hjá Orkustofnun flutti fyrir tveimur vikum á ráðstefnu í Osló um olíuleit á Norðurslóðum þar sem hann sagði meðal annars að koma yrði á fót þyrlumiðstöð á norðausturhorni Íslands. Þá er er rætt við Thinu Saltvedt, olíusérfræðing Nordea-bankans, en hún var meðal fyrirlesara á ráðstefnu um Drekasvæðið sem Arion-banki stóð fyrir í Reykjavík fyrir tveimur árum.


Tengdar fréttir

Hækkandi olíuverð gerir Drekann arðvænlegri

Drekasvæðið verður arðbærara eftir því sem olíuverð hækkar, segir olíusérfræðingur Nordea-bankans, sem telur að Ísland, þótt lítið sé, gæti orðið mikilvægt olíuútflutningsríki. Þetta kom fram á ráðstefnu í dag um olíu á Drekasvæðinu.

Stórþingið samþykkti að ganga inn í Drekaleyfið

Norska Stórþingið staðfesti í dag þátttöku norska ríkisins í þriðja olíuleitarleyfinu á íslenska Drekasvæðinu, með samþykkt sérstakrar fjárveitingar til verkefnisins á fjárlögum Noregs.

Boranir fyrirhugaðar á Drekanum eftir 4-8 ár

Innkoma fyrsta olíurisans á Drekasvæðið, kínversks ríkisolíufélags, sem formlega var innsigluð í dag, markar þáttaskil í olíuleitinni, að mati stjórnarformanns íslenska félagsins Eykons.

Ísland með hæstu olíuskatta heims

Skattheimtan sem íslenska ríkið hyggst leggja á olíuvinnslu verður sú hæsta í heimi, ef tekið er tillit til endurgreiðslna sem norska ríkið býður þar í landi. Þetta staðhæfir stjórnarformaður Eykons.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×