Óskað kyrrsetninga á eignum Jóns Ásgeirs um allan heim 12. maí 2010 07:56 Þá hefur dómstóll í London gefið út úrskurð, að kröfu Glitnis, um kyrrsetningu eigna Jóns Ásgeirs Jóhannessonar um víða veröld. Þeirra á meðal eru tvær íbúðir í auðmannahverfinu Gramercy Park á Manhattan sem hann keypti á u.þ.b. 25 milljónir dala.
Dómstóll í London hefur óskað eftir kyrrsetningu á eignum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar hvar sem er í heiminum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem slitastjórn Glitnis sendi frá sér í nótt.Óháð málaferlunum í New York fékk slitastjórn Glitnis banka í gær, 11. maí 2010, úrskurð dómstóls í London um kyrrsetningu eigna Jóns Ásgeirs Jóhannessonar um allan heim. Þá hefur slitastjórnin krafist kyrrsetningar á eignum Jóns Ásgeirs, Lárusar Welding og Pálma Haraldssonar, áður stjórnarmanns Glitnis banka, á Íslandi.Í tilkynningunni segir að Glitnir banki hóf í gær málaferli fyrir hæstarétti New York-ríkis í Bandaríkjunum gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, áður helsta hluthafa bankans; Lárusi Welding, áður forstjóra Glitnis; Þorsteini Jónssyni, áður stjórnarformanni; ásamt fleiri fyrrverandi stjórnarmönnum, hluthöfum og öðrum sem áttu hlut að máli með Jóni Ásgeiri, fyrir að hafa með sviksamlegum og ólöglegum hætti haft fé af bankanum sem nemur meira en tveimur milljörðum dala.Glitnir höfðar jafnframt mál gegn PricewaterhouseCoopers, fyrrum endurskoðendum bankans, fyrir að greiða fyrir og taka þátt í að dylja þau sviksamlegu viðskipti sem Jón Ásgeir og félagar komu í kring og sem að endingu leiddu til falls bankans í október 2008.Þá hefur dómstóll í London gefið út úrskurð, að kröfu Glitnis, um kyrrsetningu eigna Jóns Ásgeirs Jóhannessonar um víða veröld. Þeirra á meðal eru tvær íbúðir í auðmannahverfinu Gramercy Park á Manhattan sem hann keypti á u.þ.b. 25 milljónir dala.Jón Ásgeir - aðaleigandi fjárfestingarsamstæðunnar Baugs, sem nú hefur komist í þrot - mun vera til heimilis í Bretlandi.Hann situr þar í stjórn nokkurra vel þekktra fyrirtækja, þ. á m. Iceland Foods og House of Fraser, sem bæði eru meðal kunnustu smásölufyrirtækja þar í landi.Gögn málsins, sem dómfest var í New York 11. maí, leiða í ljós:Hvernig klíka fésýslumanna, undir forystu Jóns Ásgeirs, tók sig saman um að hafa með skipulegum hætti fé af Glitni til að styðja við sín eigin fyrirtæki þegar þau riðuðu til falls.Hvernig Jón Ásgeir og samsærismenn hans brutust til valda í Glitni, losuðu sig við reynda starfsmenn bankans eða settu þá til hliðar og misnotuðu þessa valdastöðu til að tefla fjárhag bankans í bráðan voða.Hvernig Jón Ásgeir, Lárus Welding og aðrir, sem stefnt er í málinu, sköpuðu sér aðstöðu til að ná fé út úr bankanum og halda gerðum sínum leyndum með því að taka völdin af fjárhagslegri áhættustýringu Glitnis, brjóta gegn íslenskum lögum um bankarekstur og setja á svið aragrúa flókinna viðskipta.Hvernig hin stefndu höfðu, með hlutdeild PricewaterhouseCoopers, aflað milljarðs dala frá fjárfestum í New York án þess að láta hið sanna koma í ljós um hvílíkar áhættu bankinn hafði tekið á sig gagnvart Jóni Ásgeiri og samsærismönnum hans.Hvernig viðskipti hinna stefndu ollu Glitni meira en tveggja milljarða dala tjóni og áttu drjúgan þátt í falli bankans.Slitastjórn Glitnis stendur fyrir málaferlunum. Hún var skipuð til að annast skipti á búi bankans. Málaferlin voru undirbúin með rækilegri rannsókn þar sem farið var í saumana á stjórnun og viðskiptum Glitnis síðustu árin fyrir fall bankans.Fyrir hönd kröfuhafa Glitnis ætlar slitastjórnin að kosta kapps um að endurheimta eignir sem Jón Ásgeir og önnur hinna stefndu höfðu af bankanum en til þess telur hún dómstól New York-ríkis viðeigandi vettvang. Kjarni þessarar málssóknar er útboð skuldabréfa upp á einn milljarð dala. Bréfin voru seld í september 2007 til fjárfesta í New York, sem höfðu verið blekktir varðandi fjárhagslega áhættu Glitnis. Af um níu þúsund kröfuhöfum Glitnis eru nálægt 90% frá öðrum löndum en Íslandi.„Gögn liggja fyrir sem styðja þá ályktun að Glitnir banki hafi verið rændur innan frá," segir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis. „Málshöfðunin í dag er jákvætt skref í þá átt að draga til ábyrgðar þann fámenna hóp sem af ásetningi eða vanrækslu átti svo ríkan þátt í falli bankans."Mál slitastjórnar Glitnis banka flytja Steptoe & Johnson LLP í New York og Slaughter and May í London.
Tengdar fréttir Jóni Ásgeiri stefnt fyrir dómstól í New York Skilanefnd Glitnis hefur stefnt sjö aðaleigendum og stjórnendum bankans fyrir dómstól í New York vegna 2 milljarða dala kröfu. Upphæðin nemur um 260 milljörðum íslenskra króna miðað við gengi bandaríkjadals í dag. 11. maí 2010 22:20 Bandarískir fjárfestar blekktir með sviksamlegum hætti „Til að fjármagna þessar greiðslur út úr bankanum hafi stefndu mjög stuðst við það fé sem Glitnir aflaði í Bandaríkjunum á árinu 2007, sér í lagi með sölu á skuldabréfum fyrir einn milljarð dala til fjárfesta í New York og víðar í Bandaríkjunum í september það ár. Þegar sú sala stóð yfir voru bandarískir fjárfestar blekktir með sviksamlegum hætti varðandi þá miklu áhættu sem Glitnir hafði tekið gagnvart Jóni Ásgeiri ásamt fyrirtækjum og einstaklingum í tengslum við hann." 12. maí 2010 08:24 Mest lesið Hneykslaðist á „óútfærðum afkomubætandi aðgerðum“ Viðskipti innlent Plasttappamálið flaug í gegnum þingið Neytendur Í fullkomnu frelsi: „Þar sem er heyskapur er ég“ Atvinnulíf Íhuga hærri tolla á alla Viðskipti erlent Ræðst í byggingu átta húsa í Hvammsvík Viðskipti innlent Einn vinsælasti tengiltvinnbíll Íslendinga snýr aftur Samstarf Vörur gerðar af meisturum fyrir meistara Samstarf Eldisfiskur fluttur út fyrir 54 milljarða króna Viðskipti innlent Deila um þvottahús stöðvar ekki Hreint í bili Viðskipti innlent BYKO opnar nýja og glæsilega timburverslun Samstarf Fleiri fréttir Hneykslaðist á „óútfærðum afkomubætandi aðgerðum“ Deila um þvottahús stöðvar ekki Hreint í bili Eldisfiskur fluttur út fyrir 54 milljarða króna Ræðst í byggingu átta húsa í Hvammsvík Trúir ekki að menn loki fiskvinnslu til að mótmæla veiðigjöldum „Þetta er afnotagjald“ Play komið með flugrekstrarleyfi á Möltu Jón Ólafur í framboði til formanns SA Eigendaskipti hjá Fótbolta.net Feðgarnir nú aftur einu hluthafarnir í Eyri Invest Eyjólfur Árni hættir hjá SA Hagnaðist um tvo milljarða: Ljóst að greinin megi ekki við hækkunum Verðbólga heldur áfram að hjaðna Versta sviðsmyndin sé að lenda á milli Evrópu og Bandaríkjanna í tollastríði Íhuga að sameina lífeyrissjóði „Reiðarslag fyrir þau þorp þar sem stundaðar eru veiðar og vinnsla“ Tollastríðið gæti vel haft áhrif á lífskjör almennings Salóme tekur við af stofnanda Ísorku Helgi ráðinn sölustjóri Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Kemur nýr inn í fjármálastöðugleikanefnd Mikil óvissa í alþjóðamálum gæti reynt á þjóðarbúið Segir útlitið svart fyrir sjávarútveginn og breytingarnar illa unnar „Íslenskur sjávarútvegur er burðarás í atvinnulífinu“ Lýsa yfir verulegum áhyggjum af tvöföldun veiðigjalda Allt að tvöfalda veiðigjöldin og segja útgerðina þola það vel Aflinn verði verkaður annars staðar eftir breytingar stjórnarinnar Sækja á sjötta milljarð króna Laun eftir kjarasamningi „gervistéttarfélags“ sögð tugum þúsunda lægri Spá 1,8 prósent hagvexti í ár og 2,7 prósent verðbólgu á næsta ári Sjá meira
Jóni Ásgeiri stefnt fyrir dómstól í New York Skilanefnd Glitnis hefur stefnt sjö aðaleigendum og stjórnendum bankans fyrir dómstól í New York vegna 2 milljarða dala kröfu. Upphæðin nemur um 260 milljörðum íslenskra króna miðað við gengi bandaríkjadals í dag. 11. maí 2010 22:20
Bandarískir fjárfestar blekktir með sviksamlegum hætti „Til að fjármagna þessar greiðslur út úr bankanum hafi stefndu mjög stuðst við það fé sem Glitnir aflaði í Bandaríkjunum á árinu 2007, sér í lagi með sölu á skuldabréfum fyrir einn milljarð dala til fjárfesta í New York og víðar í Bandaríkjunum í september það ár. Þegar sú sala stóð yfir voru bandarískir fjárfestar blekktir með sviksamlegum hætti varðandi þá miklu áhættu sem Glitnir hafði tekið gagnvart Jóni Ásgeiri ásamt fyrirtækjum og einstaklingum í tengslum við hann." 12. maí 2010 08:24