Meistaradeildin

Meistaradeildin

Keppni hinna bestu í Evrópu.

Leikirnir




    Fréttamynd

    Eins og í Liverpool-sögu

    Liverpool varð Evrópumeistari í gær þegar þeir sigruðu AC Milan í dramatískum úrslitaleik í Istanbúl. Liverpool var 3-0 undir í leikhléi en snéri töpuðu tafli sér í hag á ótrúlegan hátt.

    Sport
    Fréttamynd

    AC Milan yfir gegn Liverpool

    AC Milan er 1-0 yfir gegn Liverpool í úrslitaleik Meistardeildar Evrópu í Istanbul í Tyrklandi. Paolo Maldini skoraði markið eftir aðeins 50 sekúndna leik eftir aukaspyrnu frá Andrea Pirlo. Leikurinn hófst kl. 18.45 og er í beinni útsendingu á Sýn.

    Sport
    Fréttamynd

    LIVERPOOL JAFNAR !

    Liverpool hefur tekist hið ómögulega að jafna gegn AC Milan þar sem staðan er orðin 3-3 í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Xabi Alonso jafnaði úr vítaspyrnu sem Steven Gerrard fiskaði á Gattuso á 60. mínútu og hefur Liverpool skorað 3 mörk á 6 mínútum eftir að staðan var 3-0 í hálfleik fyrir Milan.

    Sport
    Fréttamynd

    Tvö mörk Liverpool á 2 mínútum

    Steven Gerrard og Vladimir Smicer hafa minnkað muninn fyrir Liverpool í 2-3 gegn AC Milan í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Mörkin komu með 2 mínútna millibili í upphafi síðari hálfleiks, Gerrard á 54. mínútu og Smicer á 56. mínútu.

    Sport
    Fréttamynd

    AC Milan að slátra Liverpool

    AC Milan er hreinlega að ganga frá Liverpool strax í fyrri hálfleik í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en staðan er orðin 3-0 fyrir Ítalana þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Argentínumaðurinn Hernan Crespo hefur skorað tvívegis með 5 mínútna millibili skömmu fyrir hálfleik. Fyrst á 39. mínútu og svo á 44. mínútu.

    Sport
    Fréttamynd

    Tvö lið - 19 þjóðerni

    Leikmenn frá 19 löndum öttu kappi í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í knattpyrnu í Istanbul í Tyrklandi milli AC Milan og Liverpool. Hjá sexföldum Evrópumeisturum Milan voru leikmenn af 8 þjóðernum í hópnum. Liverpool stillti upp leikmönnum frá 9 mismunandi þjóðum í byrjunarliðinu einu.

    Sport
    Fréttamynd

    LIVERPOOL EVRÓPUMEISTARAR!

    Liverpool var að tryggja sér Evrópumeistaratitilinn í knattspyrnu eftir sigur á AC Milan í vítaspyrnukeppni, 2-3. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 3-3 eftir að AC Milan komst í 3-0 í fyrri hálfleik. Markvörðurinn Jerzy Dudek var hetja Liverpool í vítaspyrnukeppninni þar sem hann varði tvær vítaspyrnur.

    Sport
    Fréttamynd

    Maradona spáir Milan sigri

    Knattspyrnugoðsögnin Maradona spáir því að AC Milan hampi Evrópumeistaratitlinum annað kvöld en þá mætir ítalska liðið Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Sá litli argentínski er staddur í Istanbul í Tyrklandi og verður viðstaddur leikinn.

    Sport
    Fréttamynd

    Reynsla á móti hungri í sigur

    Í kvöld er einn af hápunktum knattspyrnuvertíðarinnar þegar Liverpool og AC Milan mætast í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Milan varð síðast Evrópumeistari fyrir tveimur árum og hefur á að skipa gríðarlega reyndu liði, á meðan enska liðið hefur ekki sigrað í keppninni í 21 ár.

    Sport
    Fréttamynd

    Síðasti leikurinn með Liverpool?

    Milan Baros, sóknarmaður Liverpool segir að úrslitaleikurinn í Meistaradeildinni gegn AC Milan annað kvöld geti orðið síðasti leikur hans fyrir félagið. Baros er ekki sáttur að fá ekki að leika meira með liðinu og mun skoða möguleika sína eftir leikinn. Mörg félög hafa borið víurnar í hann.

    Sport
    Fréttamynd

    Rush var hetja Shevchenko

    Framherji AC Milan, Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko, hefur sagt frá því að ein af hetjum hans síðan hann var polli sé ein af goðsögnum Liverpool, Ian Rush. Þetta segir Shevchenko aðeins tveimur dögum fyrir úrslitlaleik Meistaradeildarinnar á milli AC Milan og Liverpool.

    Sport
    Fréttamynd

    Segir Spánverja styðja Liverpool

    Luis Garcia, leikmaður Liverpool, segir að spænska þjóðin fylki sér á bak við Liverpool gegn AC Milan í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á miðvikudag en leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn frá Ataturk-vellinum í Istanbúl. Sex leikmenn Liverpool hafa leikið í spænska boltanum og Rafael Benitez þjálfaði áður Valencia.

    Sport
    Fréttamynd

    Riise tilbúinn að urra í Istanbul

    John Arne Riise, leikmaður Liverpool, hefur sent AC Milan aðvörun um að leikmenn Liverpool séu tilbúnir ,,vinna eins og ljón og berjast eins og tígrar" í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á miðvikudaginn kemur.

    Sport
    Fréttamynd

    Ambrosini ekki með í Istanbul?

    Miðjumaðurinn hjá AC Milan, Massimo Ambrosini, mun líklega missa af úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Liverpool í Istanbul þann 25. maí vegna meiðsla.

    Sport
    Fréttamynd

    Owen ráðleggur Liverpool

    Enski landsliðsmaðurinn Michael Owen hjá Real Madrid, sem áður lék með Liverpool, hefur hvatt sína gömlu félaga sína til að einbeita sér að því að reyna að vinna meistaradeildina í stað þess að vera að þrátta um þáttökurétt sinn á næsta ári.

    Sport
    Fréttamynd

    Liverpool í rauðu í Istanbul

    Liverpool mun verða í sínum rauðu búningum í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu gegn AC Milan í Istanbul þann 25. maí næstkomandi. Milan vann hlutkestið um heimalið og hefði því átt að vera í rauðu, en liðin hafa komist að samkomulagi um að Milan spili í sínum hvítu varabúningum, búningnum sem þeir unnu Juventis í úrslitum Meistaradeildarinnar fyrir tveimur árum

    Sport
    Fréttamynd

    Tunglmarkið réði úrslitum

    Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, er á þeirri skoðun að markið sem skildi lið hans og Liverpool að í meistaradeildinni í gær, hefði aldrei átt að standa.

    Sport
    Fréttamynd

    Liverpool gæti fengið sekt

    Lið Liverpool gæti átt yfir höfði sér sekt vegna brjálæðinganna tveggja sem sluppu inn á völlinn hjá liðinu í leiknum við Chelsea í meistaradeildinni í gærkvöldi.

    Sport
    Fréttamynd

    PSV í framherjavandræðum

    Hollensku meistararnir í PSV Eindhoven eiga í vandræðum með meiðsli framherja sinna og óvíst er með það hverjir verða í fremstu víglínu í leiknum við AC Milan í meistaradeildinni í kvöld.

    Sport
    Fréttamynd

    PSV komið í 2-0 gegn Milan

    PSV Eindhoven frá Hollandi var rétt í þessu að komast í 2-0 gegn AC Milan í síðari undanúrslitaleik liðanna í meistaradeildinni, en leikurinn fer fram í Hollandi.

    Sport
    Fréttamynd

    Milan í úrslit meistaradeildar

    Lokamínútur viðureignar PSV og AC Milan voru æsilegar og dramatískar, en AC Milan hefur tryggt sér farseðilinn í úrslitaleikinn við Liverpool, þrátt fyrir 3-1 tap í kvöld. Massimo Ambrosini minnkaði muninn fyrir AC Milan á lokamínútu venjulegs leiktíma.

    Sport
    Fréttamynd

    Benitez sama hverjum hann mætir

    Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að sér sé alveg sama hvaða liði sitt lið mæti í úrslitaleik meistaradeildarinnar, sínir menn séu staðráðnir í að vinna.

    Sport
    Fréttamynd

    Stam þakkar heppninni

    Jaap Stam varnarmaður AC Milan segir lið sitt hafa verið heppið að komast í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Milan sló út hollenska liðið PSV Eindhoven í undanúrslitunum þrátt fyrir 3-1 tap í Hollandi í kvöld. "...Við lékum lékum ekkert sérstaklega vel ..."  Mark van Bommel miðjumaður PSV gat ekki leynt vonbrigðum sínum. "<em>Við áttum skilið að vinna.."</em>

    Sport
    Fréttamynd

    Cech segir Chelsea í góðri stöðu

    Petr Cech, markvörður Chelsea, segir sína menn í góðri aðstöðu til að leggja Liverpool í meistaradeildinni í kvöld, ekki síst vegna þess að bæði Damien Duff og Arjen Robben hafa lýst sig klára í slaginn.

    Sport
    Fréttamynd

    Baráttan um Bretland

    "Steve er leikmaður sem getur breytt gangi leikja upp á eigin spýtur. Sjáið bara markið sem hann skoraði um síðustu helgi. Ef hann spilar vel þá spilar Liverpool vel," sagði Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, á blaðamannafundi sem haldinn var í gær fyrir síðari leik Liverpool og Chelsea í Meistaradeild Evrópu,

    Sport
    Fréttamynd

    Mourinho: Betra liðið tapaði

    Framkvæmdastjóri Chelsea, Portúgalinn Jose Mourinho, segir að betra liðið hafi tapað á Anfield í kvöld. Þeir bláu voru slegnir út úr Meistaradeildinni með umdeildu marki Luis Garcia, en myndbandsupptökur gátu ekki sýnt hvort boltinn var kominn inn eða ekki þegar William Gallas hreinsaði frá markinu.

    Sport
    Fréttamynd

    Rafa ver mark Garcia

    Rafa Benitez hefur varið markið umdeilda sem Luis Garcia skoraði er lið hans, Liverpool, sló Chelsea út úr Meistaradeild Evrópu í kvöld og er komið í úrslit. Sá spænski sagði að Petr Cech hefði fellt Milan Baros og hefði dómarinn ekki dæmt markið gilt hefði hann þurft að dæma víti og reka Cech af leikvelli.

    Sport
    Fréttamynd

    Liverpool yfir í leikhléi

    Það er kominn hálfleikur í leik seinni leik Liverpool og Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu og staðan 1-0 fyrir Liverpool. Það var Spánverjinn snjalli Luis Garcia sem skoraði markið strax á fjórðu mínútu.

    Sport
    Fréttamynd

    Garcia kemur Liverpool yfir

    Luis Garcia er búinn að koma Liverpool yfir gegn Chelsea í seinni leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

    Sport