Tíska og hönnun

Tíska og hönnun

Allt það nýjasta úr heimi tískunnar og fréttir af sviði hönnunar.

Fréttamynd

Nýir og gamlir hönnuði

Fatahönnuðurinn Valentino kom, sá og sigraði á tískuvikunni í París sem lauk síðastliðinn þriðjudag og sýndi enn fremur af hverju hann er einn ástsælasti hönnuður heims.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Von Furstenberg-vafningskjóllinn

Prinsessan Diane von Furstenberg kom fram í tískuheiminum upp úr 1970 og tveimur árum seinna kynnti hún hinn heimsfræga "Wrap dress" eða "vafningskjólinn" fyrir heimsbyggðinni. Kjóllinn seldist gríðarlega á næstu árum og kom prinsessunni á forsíðu Newsweek árið 1976, þar sem hún er sögð mesta markaðsmanneskjan í tískubransanum síðan Coco Chanel var og hét.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Glitrandi litadýrð

Indverskur fatnaður er nú til sölu á Íslandi, sem eykur talsvert á fjölbreytni í fataúrvali landans. Fatnaðurinn er mjög litríkur og fallega skreyttur og hægt að nota við ýmis tækifæri. Valgerður Shamsudin, sem sér um sölu og innflutning á fatnaðinum ásamt Salim eiginmanni sínum, segist sjálf hafa notað indverskan fatnað mikið og veki það athygli hvert sem hún komi.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Ríkmannlegur hefðarstíll

Gardínur setja tóninn á heimilinu hvað varðar liti og efnisval og í vetur virðist tónninn vera brúnn. Sjá má sömu liti í gardínutískunni og í fatatískunni og auk brúna litsins eru gylltir og vínrauðir tónar áberandi.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Herralegir töffarar

Enskur prófessor og götustrákur mætast í herratísku vetrarins. Fínir jakkar úr flaueli eru notaðir við grófar og víðar gallabuxur og strigaskó, en skórnir eru með þunnum botni og fótlaga og mikið er um leðurskó sem hafa á sér strigaskóa-útlit.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Fágun og frumleiki

Þeir sem heimsótt hafa Kringluna að undanförnu hafa eflaust tekið eftir því að verið er að kynna haust- og vetrartískuna í verslunum. Þar eru gínur úti um öll gólf og gefið var út sérstakt tímarit fyrir stuttu til að kynna tískuna enn fremur.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Einfaldlega geggjaður

"Glingrið, skeljarnar og steinarnir. Hann er svo mikið ég," segir Jane María Sigurðardóttir, markaðsfulltrúi í Smáralind, þegar hún segir frá eftirlætisbolnum sínum sem er úr þunnu gráu silki með ísaumuðum glitsteinum og skeljum. Hún rakst á bolinn á sumarútsölu og stóðst ekki freistinguna.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Litir og léttleiki

<font face="Helv"> Tískuvikan í London hófst með pompi og prakt sunnudaginn 19. september með glæsilegum ofurfyrirsætum og 45 hönnuðum víðs vegar að sem sýndu heiminum komandi tísku fyrir næsta vor og sumar. Við getum strax farið að hlakka til þar sem tískan sýndi léttleika og gleði sem aldrei fyrr og verður vorið og sumarið því með þeim bestu hingað til. </font>

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Vinkonur með persónulegan stíl

Dís og vinkonur hennar í samnefndri kvikmynd tolla í tískunni en eru ekki tískudrósir og þær fara eigin leiðir í fatastíl segir Bergþóra Magnúsdóttir hönnuður sem sá um búningana í kvikmyndinni sem frumsýnd var á dögunum.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Ekki hrædd við að vera áberandi

"Ég er náttúrlega algjört fatafrík og á mér fullt af uppáhaldsflíkum. Ég verð að nefna fyrstan grænan, tvískiptan kjól sem er ægilega skemmtilegur, með hvítu tjulli undir pilsinu og pífur upp úr blússunni. Hann er bara ekkert eðlilega flottur," segir Marentza Poulsen, smurbrauðsjómfrú.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Nánast ódrepandi jakki

Ég á einn jakka sem er uppáhaldsflíkin mín. Þetta er Sherlock Holmes-jakki og frekar stuttur jakkafatajakki. Þetta er brúnleitur, köflóttur ullarjakki með ekta Sherlock Holmes-kraga og stórum brúnum tölum," segir Valur Freyr Einarsson, leikari.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Hausttískan

Tískan heldur áfram að vera fjölbreytt í haust eins og glöggt má sjá í búðunum. Hún gefur tóninn hvað litasamsetningar og mynstur varða og í haust er brúni liturinn allsráðandi auk jarðarlitanna og skæru litirnir haldast aðeins inni enn um sinn.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Gaman að sauma

Falleg fataefni í ströngum kveikja ætíð blik í augum þeirra sem vanar eru að fást við vélsaum. Sem betur fer eru enn til verslanir sem sinna þörfum þeirra og bjóða upp á úrval efna í dýrindis flíkur, hvort sem um er að ræða samkvæmisklæðnað, sportfatnað, hvunndagsflíkur eða barnaföt.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Sérverslun með stíl

Lakkrísbúðin á Laugavegi er skemmtileg sérverslun sem opnaði í vor. Lakkrísbúðin selur hátísku fatnað eftir erlenda unga framsækna hönnuði og byrjaði nýverið að bjóða einnig upp á íslenska hönnun. Það eru systkinin Þuríður Rún Sigurþórsdóttir og Þór Sigurþórsson ásamt Andreu Maack Pétursdóttur sem eiga og reka Lakkrísbúðina.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Lagerfeld hannar fyrir H&M

Tískufatnaður á viðráðanlegu verði virðist vera að gera góða hluti í hinum stóra tískuheimi. Nú er ekki aðalmálið að eiga tíu þúsund króna nærbuxur eða hundrað þúsund króna bol heldur eru frægir hönnuðir farnir að fórna sér fyrir fjöldaframleiðsluverslani

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Spútnik opnar nýja búð

 Í bongóblíðunni fimmtudaginn 12. ágúst var verslunin Spútnik opnuð í nýju og víðu rými við Klapparstíginn. Hér bætist enn við þá skemmtilegu flóru af verslun og menningu sem hefur verið að myndast við þessa götu undanfarið ár.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Charlize keppir við Nicole

Hin yndisfríða suður-afríska leikkona Charlize Theron hefur skrifað undir samning hjá Christian Dior. Það þýðir að Theron er hið nýja andlit metsöluilmvatnsins þeirra Dior-manna, Jadore.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Berlusconi flottur

Þjóðarleiðtoginn Silvio Berlusconi er ekki bara heimsfrægur fyrir stjórnmálastílinn sinn heldur hefur hann nú getið sér gott orð í tískuheiminum

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Ert þú Eskimo módel?

Tískuskrifstofan Eskimo Models býður nú upp á alvöru tískuljósmyndun. Hver sem er getur haft samband við Eskimo og fengið slíka ljósmyndun.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Gleraugnasýning á Menningarnótt

Gleraugnaframleiðandinn Booth & Bruce England hefur ekki starfað lengi en hefur þó slegið í gegn á alþjóðamarkaði.  Booth & Bruce selur nú gleraugu um allan heim og er Yoko Ono einn af þekktustu viðskiptavinunum.  Gleraugnaverslunin Sjáðu á Laugavegi er umboðsaðili fyrirtækisins á Íslandi.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Fashion Rocks

Tónleikarnir Fashion Rocks munu marka upphafið að tískuvikunni í New York, sem hefst þann 8. september. Tónleikarnir verða sýndir í beinni á Fox-sjónvarpsstöðinni þann 26. ágúst

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Nælur eru ekki asnalegar lengur

Nýjasta nýtt í tískuheiminum er nælur. Þó ótrúlegt megi virðast þá eru jafnt ungir sem aldnir að skreyta sig með nælum þótt áður fyrr hafi bara mömmur, ömmur og langömmur borið þær.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Nauðsynlegar fyrir haustið

Þeir sem lagt hafa leið sína í Gallerí Reykjavík í Iðu-húsinu við Lækjargötu hafa eflaust tekið eftir skærlitum töskum úr þæfðri ull sem eru þar til sýnis. Þessar töskur eru nýlega komnar í galleríið og er hönnuður þeirra myndlistarkonan Jóhanna Helga Þorkelsdóttir.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Lumar á ýmsu í fataskápnum

Ég luma nú á ýmsu í fataskápnum. Ég á hlébarðabuxur, sebrabuxur og latexbuxur, netaboli, Hawaiskyrtur og kúrekaskyrtur og fullt af jakkafötum svo eitthvað sé nefnt. Mér þykir mjög vænt um fötin mín," segir tónlistarmaðurinn Ceres4. "Mér er einstaklega annt um dýr í útrýmingarhættu og ég klæðist þessum fötum við sérstök tilefni," segir Ceres en hann verslar yfirleitt þessi "öðruvísi" föt erlendis

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Áhrif frá Afríku

Hausttískan í ár gætir mikilla áhrifa frá Afríku. Ástæða þess er vegna fjölmargra ungra hönnuða sem eru að stíga sín fyrstu skref.

Tíska og hönnun