Lífið

Páll Óskar hættur í Eurovision-þættinum

Hefur ekki tíma Páll Óskar hefur ekki tíma fyrir Eurovision-þáttinn Alla leið á RÚV og er hættur. Hann vill frekar syngja á tónleikum eða vera í hljóðveri.
Hefur ekki tíma Páll Óskar hefur ekki tíma fyrir Eurovision-þáttinn Alla leið á RÚV og er hættur. Hann vill frekar syngja á tónleikum eða vera í hljóðveri.
„Eurovision hefur fengið nóg pláss í mínu lífi og ég hef einfaldlega ekki metnað til að gera sjónvarpsþátt eða vera dagskrárgerðamaður. Mig langar miklu meira til að vera í hljóðveri eða halda tónleika,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson.

Hann er hættur að stjórna Eurovision-þættinum Alla leið, sem hefur verið á dagskrá RÚV undanfarin ár og notið mikilla vinsælda. Þar hefur Páll sest á rökstóla með þeim Guðrúnu Gunnarsdóttur, Reyni Þór og Dr. Gunna og spáð og spekúlerað í Eurovision.

Páll segir að undirbúningur þáttarins hafi tekið mikinn tíma og hann reiknar ekki með því að taka þátt þátt í Eurovision-keppninni í ár. Rifjast þá upp fréttir af því þegar Jónsi úr Sigur Rós lýsti því yfir að hann ætti lag á lager sem hefði verið sérstaklega samið fyrir Pál og ætti að flytja í keppninni í ár. Á lista Rásar 2 yfir þá þrjátíu lagahöfunda sem þjóðin vill að sendi inn lag í keppnina í ár er einmitt minnst á þetta samstarf. „Ég hef ekkert heyrt frá Jónsa og ekki heyrt þetta lag. Mér skilst að hann hafi gengið með þennan draum í maganum í tíu ár en meira veit ég ekki. “

Fram undan hjá Páli er risastór pakki sem inniheldur meðal annars DVD-disk með tónleikum hans í Hörpu ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt því efni sem hann hefur verið að vinna að síðan Silfursafnið kom út. „Mér finnst æðislegt að geta komið þessu öllu frá mér og byrjað að vinna að næstu poppplötu með hreint borð. Og vonandi kemur hún út fyrir jólin 2012.“- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×