Aðferðin við að elda Pollichathu fisk frá veitingahúsinu Gandhi Pósthússtræti má sjá í meðfylgjandi myndskeiði en þessi fiskur er mjög vinsæll réttur frá Kerala héraðinu á Indlandi.
Uppskrift fyrir 2
1. Skref - Kryddlögur fyrir marineringu
400 gr steinbítur eða hlýri.
3 tsk. chilli duft
¼ tsk. turmeric krydd
½ tsk. pipar
¼ tsk. engifer mauk eða duft
2 hvítlauskrif smátt söxuð
1 msk. sítrónusafi
Salt eftir smekk
¼ bolli kókosolía til steikingar
Skerið nokkrar rákir í fiskinn fyrir marineringu. Blandið öllu saman svo úr verði mauk og marinerið fiskinn í alla vega í 2 tíma. Hitið olíu á pönnu til steikingar og léttsteikið fiskinn á báðum hliðum, alls ekki of mikið.
2. Skref - Sósan
1 fínt skorinn laukur
1 ¼ tsk. þunnt sneiddur engifer
6-8 mjög þunnt sneiddur grænn chilli
Nokkur karrílauf
Hnífsoddur af turmeric dufti
Hnífsoddur af chilli dufti
2 msk. kókosolía
¼ bolli kókosmjólk
Salt eftir smekk
Bananalaufin sem eru notuð fást í tælenskum búðum í Reykjavík
Hitið 2 msk. af olíu á pönnu og steikið laukinn, engifer, grænt chilli og karrílauf þangað til það verður ljósbrúnt, bætið þá við turmeric og chilli dufti. Bætið við kókosmjólk og látið malla í smá stund þangað til hæfilega þykkt.
Þvoið bananalaufin vel og smyrjið helmingnum af sósunni á bananalaufið. Raðið fiskinum þar ofan á og svo restinni af sósunni. Pakkið bananalaufunum utan um fiskinn og steikið á pönnu í c.a. 10 mínútur.
Berið fram með hrísgrjónum.
