Prestur braut kynferðislega gegn unglingum Erla Hlynsdóttir skrifar 16. september 2010 20:45 Biskupsstofa. „
Biskupsstofa staðfestir að fram hafa komið ásakanir frá þremur einstaklingum á hendur presti um kynferðislega áreitni og kynferðisbrot. Fagráð um meðferð kynferðisbrota hefur haft málið til umfjöllunar. Viðkomandi presti voru kynntar þær ásakanir sem hann var borinn. Brotin áttu sér stað fyrir 25 árum og eru því fyrnd að lögum. Viðkomandi prestur hefur ekki gegnt föstu embætti í kirkjunni um árabil. Hann mun sökum brotanna ekki gegna störfum sem prestur né koma fram á vegum þjóðkirkjunnar, safnaða hennar, stofnana eða kristilegra félaga sem starfa innan vébanda hennar." Þetta kemur fram í bréfi sem Vísi barst frá Biskupsstofu eftir að blaðamaður bar málið upp við formann fagráðs um meðferð kynferðisbrota innan kirkjunnar. Eins og segir í bréfinu eru brotin fyrnd og koma málin því aldrei til kasta dómstóla. Presturinn er sakaður um að hafa brotið gegnum tveimur unglingum á sextánda ári og einum fulltíða einstaklingi. Lögum um kynferðisbrot gegn börnum undir átján ára aldri var breytt árið 2007 á þann veg að brotin fyrnast ekki. Lögin eru ekki afturvirk. Umræða um kynferðisbrot presta innan þjóðkirkjunnar hefur farið hátt að undanförnu. Þar hafa hæst borið ásakanir á hendur séra Ólafi Skúlasyni, fyrrverandi biskupi íslands. Áratugir eru síðan hann var fyrst sakaður um kynferðisbrot en málið var þaggað niður. Þær konur sem sökuðu hann um að hafa brotið gegn sér voru gerðar tortryggilegar og jafnvel úthrópaðar á götum úti. Viðhorf í samfélaginu hafa breyst á þessum árum sem liðin eru síðan. Þegar dóttir séra Ólafs steig nýverið fram og sagði föður sinn hafa misnotað sig virtist það hafa þau áhrif að fleiri fóru að taka mark á hinum konunum.
Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Innlent Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Innlent Fleiri fréttir Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Sjá meira