Innlent

Rafmagn áfram skammtað á Vestfjörðum

Nauðsynlegt er að skammta rafmagn á norðanverðum Vestfjörðum í dag líkt og gera þurfti í gær.

Á heimasíðu Orkubús Vestfjarða segir að vegna veðurs hafi ekki tekist að klára viðgerð á flutningslínum frá Mjólká í Breiðadal og á Breiðadalslínu 1.

Viðgerð verður fram haldið í dag en þar til henni lýkur verður nauðsynlegt að grípa til skammtana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×