Innlent

Rannsaka rusl við strendur landsins

Ætla að lang flest sveitarfélög hreinsi sínar strendur reglulega, enda telja flest sveitarfélög að mikið rusl safnist fyrir á ströndum.
Ætla að lang flest sveitarfélög hreinsi sínar strendur reglulega, enda telja flest sveitarfélög að mikið rusl safnist fyrir á ströndum.
Umhverfisráðuneytið, í samráði við Umhverfisstofnun, aflar nú upplýsinga um rusl og úrgang á ströndum hér við land og um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til við hreinsun stranda á undanförnum árum. Í þeim tilgangi hefur ráðuneytið sent öllum sveitarfélögum sem eiga land að hafi bréf þar sem þau eru beðin um að leggja mat á það hvort rusl á ströndum sé útbreytt vandamál innan sveitarfélagsins og hvort það ógni lífríki hafs og stranda, heilsu manna eða hafi önnur neikvæð áhrif á notkun strandarinnar.

Þetta kemur fram á vef ráðuneytisins.

Nokkur fjöldi svara hefur þegar borist og af þeim má ætla að lang flest sveitarfélög hreinsi sínar strendur reglulega, enda telja flest sveitarfélög að mikið rusl safnist fyrir á ströndum. Talsverður kostnaður fylgir því fyrir sveitarfélög að hreinsa strendur á hverju ári, þrátt fyrir að oft sé unnið að hreinsuninni í samvinnu við sjálfboðaliðasamtök, til dæmis Bláa herinn, Seeds, Veraldarvini og Ungmennafélag Íslands, og einnig víða með virkri þátttöku unglingavinnu sveitarfélaga.

Mikil umræða fer nú fram á alþjóðavettvangi um áhrif rusls og úrgangs á lífríki hafs og stranda, skaðsemi þess og kostnað vegna hreinsunar. OSPAR samningurinn sem fjallar um vernd Norð-austur Atlantshafsins hefur nýlega gefið út skýrslu sem fjallar um kostnað vegna hreinsunar hafs og stranda en í henni er einnig að finna almenna úttekt á rusli og úrgangi við strendur Norð-Austur Atlantshafið. Hjá mörgum aðildarlöndum OSPAR, þar á meðal á Íslandi, er lítið vitað um vandann. Þess vegna ákvað umhverfisráðuneytið að afla þessara upplýsinga hjá sveitarfélögum og í kjölfarið verður ákveðið hvort grípa þurfi til sérstakra aðgerða.

Sjá frétt á vef umhverfisráðuneytisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×