Enski boltinn

Reina færði Fulham þrjú stig á silfurfati

Nordic Photos / Getty Images
Fulham vann dramatískan 1-0 sigur á Liverpool er liðin mættust á Craven Cottage í kvöld. Pepe Reina var skúrkur kvöldsins er hann gaf Fulham sigurmarkið.

Danny Murphy átti þá laust og lélegt skot að marki. Reina hélt ekki boltanum og eftirleikurinn var auðveldur fyrir Clint Dempsey. Ákaflega klaufalegt.

Liverpool lék manni færra síðustu 20 mínútur leiksins en Jay Spearing fékk að líta rauða spjaldið fyrir litlar og nánast engar sakir. Glórulaus dómur hjá Kevin Friend sem er vinur Liverpool-manna í dag.

Liverpool situr sem fastast í sjöunda sæti eftir leikinn en Fulham reif sig upp í níunda sæti.

Staðan í ensku úrvalsdeildinni




Fleiri fréttir

Sjá meira


×