Réttarhöldum yfir níumenningunum lokið

Vísir Innlent 20. janúar 2011 16:31
Lögmenn níumenningana stilla sér upp á mynd í lok réttarhaldanna.
Lögmenn níumenningana stilla sér upp á mynd í lok réttarhaldanna.
SB skrifar:

Ákæra ríkissaksóknara á hendur níumenningunum var harðlega gagnrýnd af verjendum níumenningana í dag. Verjendurnir fjórir fóru allir fram á sýknu skjólstæðinga sinna.

Verjendurnir hafa bent á að ákæruvaldið hafi ekki getað sýnt fram á ásetning níumenningana um að ætla að ráðast gegn friðhelgi Alþingis eða um önnur brot sem þeir eru sakaðir um. Þeir hafa jafnframt gagnrýnt ákæruna harðlega.

"Það má ekki umgangast 100. greinina af léttúð og ekki má gefa út ákæru nema meiri líkur en minni séu á sakfellingu," sagði Bjarni Einarsson, lögmaður Teits Ársælssonar. "Í tilviki skjólstæðings minns er honum gert að sök að ganga inn í Alþingishúsið, upp 17 tröppur og lenda svo í kös. Þó hann hafi ekki afhent yfirhöfn eða töskur er það ekki árás á Alþingi og fáránlegt að halda slíku fram."

Málflutningur Bjarna var líkt og annarra verjenda afar gagnrýninn í garð Láru V. Júlíusdóttur. Lára fór í morgun fram á hörðustu refsingu yfir níumenningunum og sagði þau ekki eiga sér neinar málsbætur.

Upplausnarástand

Bjarni benti einnig á að enginn viti í raun hvaða fyrirmæli lögreglan hafi gefið. Ástandið hafi, líkt og aðrir verjendur bentu einnig á, einfaldlega farið úr böndunum.

"Það man til dæmis enginn lögregluþjónn eftir því að hafa handtekið skjólstæðing minn. Það eitt að vera í húsi er ekki húsbrot - ef svo er þá hefði átt að handtaka alla en ekki velja handahófskennt úr hópnum og ákæra níu."

Brynjar Níelsson, verjandi Andra Lemarqui og Jóns Benedikts, sagði ákæruna óskiljanlega. Ekkert sé upplýst í þessu máli. "Það hefur ekki verið upplýst að hinir ákærðu hafi farið inn í Alþingishúið í því skyni að svipta Alþingi sjálfræði eða í aðgerðir þar sem Alþingi var hætta búin," sagði Brynjar og spurði svo:

"Í hverju af því sem þarna var gert var Alþingi hætta búin?"

Beit í sjálfsvörn

Andri Lemarqui er ákærður fyrir að hafa bitið tvo lögreglumenn og hrint þingverði með þeim afleiðingum að hún féll á ofn. Brynjar benti á að í myndbandinu, sem sýnt hefur verið við réttarhöldin, sjáist að einn þingvörður ráðist aftan að Andra og þeir falli í fangabrögðum að þingverðinum Maríu sem fellur á ofninn. Sagði Brynjar engan ásetning hafa verið af hálfu skjólstæðing síns og því um gáleysi að ræða.

Varðandi bitið sagði Brynjar það hafa gerst í sjálfsvörn: "Honum er haldið af fjórum til fimm mönnum, hann er kvalinn, hendur fastar, fætur fastir, hvað á hann að gera? Þú berst á móti og það var ekkert eftir nema munnurinn sem hann gat hreyft."

Brynjar tók undir orð Ragnars Aðalsteinssonar sem sagði ríkisvaldið verða að þola hóflega truflun af mótmælum, beita verði svokölluðu meðalhófi og aðstæður skoðaðar hverju sinni.

Byltingarástand

Tekist var á um grundvallaratriði málsins í málflutningnum í dag. Verjendur lögðu mikla áherslu á það byltingarástand sem ríkti í samfélaginu á þeim tíma sem hin meintu brot hafi verið framin. Í raun hefðu mun alvarlegri hlutir átt sér stað en hin meinta árás níumenningana; rúður í Alþingishúsinu verið brotnar og eldar kveiktir. Engin rannsókn hefði hins farið fram á þeim brotum.

Lára V. Júlíusdóttir, settur ríkissaksóknari, nýtti sér ekki rétt sinn til svara og enginn sakborninga óskaði eftir því að fá að ávarpa dóminn. Við lok málflutningsins lýsti dómari því yfir að hann tæki sér fjórar vikur til þess að kveða upp dóminn yfir níumenningunum.



Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 21. maí. 2012 15:07

Stendur ekki í vegi fyrir vilja almennings ef óvissunni verður eytt

Ólafur Ragnar Grímsson útskýrði orð sín um að hann myndi hugsanlega hverfa til annarra ver...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 13:56

Forsetaframbjóðendur kynna sig í Borgarbókasafninu - nema Ólafur Ragnar

Borgarbókasafn efnir til vikulegra kynningarfunda um forsetaembættið og frambjóðendur til ...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 13:41

Mistur yfir höfuðborgarsvæðinu

Mistur hefur legið yfir höfuðborgarsvæðinu í gær og dag, 20. og 21. maí. Um er að ræða svi...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 13:24

Vill þyngri refsingu yfir konu sem varð barni sínu að bana

Vararíkissaksóknari, Helgi Magnús Gunnarsson, hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur yf...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 13:01

Jóhanna hugsanlega fjarverandi við atkvæðagreiðslu stærstu mála

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tók tveggja vikna leyfi frá þingstörfum á föstudag...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 12:43

Haglabyssa fannst við húsleit hjá Vítisengli

Fíkniefni, þýfi og haglabyssa fundust þegar lögregla gerði húsleit í Árbæ á föstudagskvöld...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 12:04

Björgunarsveitir farnar að rukka fyrir aðstoðina

Björgunarsveitir eru farnar að rukka fyrir aðstoð við ökumenn, sem ekið hafa inn á lokaða ...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 11:29

Stal loki af setlaug en tæmdi laugina af ótta við frostskemmdir

Þeir eru misstillitsamir þjófarnir, en sumarhúsaeigandi í Þingvallasveit fékk að kynnast e...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 11:09

Vill að samfélagið taki þátt umræðunni um breytingar á kerfinu

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir að það taki líklegast þrjú til fjögur ár að i...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 10:46

Björgvin minnist Robin Gibb - frábærir lagahöfundar

"Hljómsveitin Bee Gees hafði mikil áhrif á tónlistina um heim allan, mér fannst þeir æðisl...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 09:21

Vítisenglar selja Viagra

Skipulögð glæpasamtök í Svíþjóð á borð við Vítisengla virðast hafa fundið sér nýja gróðale...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 14:25

Dorrit verður viðstödd skírn sænsku prinsessunnar

Dorrit Moussaieff forsetafrú hélt áleiðis til Svíþjóðar í dag til að sækja skírn prinsessu...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 10:08

Allir fái húsnæðisbætur, óháð búsetuformi

Nú stendur yfir kynningarfundur á tillögum vinnuhóps sem velferðarráðherra skipaði um brey...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 09:35

Öskumistur í veðurblíðunni

Rykmystur hefur verið víða á sunnanverðu landinu síðustu daga og urðu margir höfuðborgarbú...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 08:55

Talið að kviknað hafi í út frá Rafmagni

Talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni, þegar veitingahúsið Frú Lára á Seyðisfirði stó...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 07:29

Unglingar brutust inn í bíla í Breiðholti

Þrír unglingspiltar voru handteknir í Breiðholti um tvö leytið í nótt, grunaðir um að hafa...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 07:10

Sigmaðurinn á gjörgæslu

Maðurinn, sem féll í fuglabjargi við Aðalvík, norðan Ísafjarðardjúps síðdegis í gær, gekks...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 07:00

Hitabylgja í spánni fyrir hvítasunnuna

"Þetta lítur mjög vel út hvað varðar hita á norðan- og austanverðu landinu,“ segir E...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 07:00

Malarnám leyft í Svarfaðardalsá

Bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar heimilar að teknir verði þrjú þúsund rúmmetrar af möl úr Svarf...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 06:00

Tuttugu þúsund fyrir eitt kíló af laxi

Snarhækkandi verð á villtum laxi á heimsmarkaði leiðir til þess að erfiðara er að kaupa up...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 06:00

Meinað að sleppa silungi í fólkvangi

Ekki fæst leyfi fyrir því að sleppa regnbogasilungi í Stórhólstjörn í Dalvíkurbyggð og sel...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 06:00

Öxull brotnaði af sömu þotu

Þotan sem missti eitt hjóla sinna við flugtak frá Keflavík á föstudag hefur áður orðið fyr...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 05:00

Rannsókn fyrirhuguð á bóluefni gegn krabbameini

Umhverfisstofnun hefur til meðferðar leyfisumsókn fyrir rannsókn með erfðabreytt bóluefni ...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 05:00

Ein sending fyrir 1,8 milljarða

Actavis og dótturfyrirtæki þess Medis sendu um mánaðamótin lyf til Evrópu fyrir tæpa tvo m...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 04:00

Áhætta bæjarsjóðs sögð í lægsta þrepi

„Þetta er náttúrulega alveg þrælmagnað,“ segir Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæ...  

Meira
Innlent 21. maí. 2012 03:15

40 prósent fá ekki sumarstarf

Akureyrarbær hafnaði rúmlega 40 prósentum umsækjenda um sumarstörf hjá bænum í fyrra og er...  

Meira
Innlent 20. maí. 2012 22:24

Kominn á gjörgæslu

Maðurinn sem féll þegar hann var við eggjatínslu á Hornströndum síðdegis er kominn á gjörg...  

Meira
Innlent 20. maí. 2012 18:45

Stúlkan hefði getað hlotið alvarlegan augnskaða

Mennirnir sem slógu gólfkúlu vísvitandi í andlit lítillar stúlku eru heppnir að hún slasað...  

Meira
Innlent 20. maí. 2012 20:41

Komst af eigin rammleik úr brennandi húsi

Karlmaður komst af eigin rammleik út úr brennandi húsi þegar eldur kveiknaði í veitingasta...  

Meira
Innlent 20. maí. 2012 19:24

Gjörbreyting á húsnæðiskerfinu

Nýjar tillögur um húsnæðisbætur verða kynntar í velferðarráðuneytinu í fyrramálið. Það er...  

Meira
Innlent 20. maí. 2012 19:18

Slasaði sigmaðurinn komst í þyrlu um hálfsjö í kvöld

Búist er við því að maðurinn sem féll niður um 25 metra þegar hann var við eggjatöku á Hor...  

Meira
Innlent 20. maí. 2012 19:15

Herdís: Stefnir í hatramma og pólitíska kosningabaráttu

Herdís Þorgeirsdóttir, forsetaframbjóðandi, segir að það stefni í hatramma og pólitíska ko...  

Meira
Innlent 20. maí. 2012 18:30

Íslendingur í Bologna: "Þetta var eins og stór alda sem fór yfir"

Íslensk stúlka sem býr í Bologna á Ítalíu líkir jarðskjálftanum sem reið yfir norðurhérað ...  

Meira
Innlent 20. maí. 2012 18:08

Björgunarmenn komnir í Aðalvík - maðurinn með meðvitund

Björgunarmenn eru nú komnir að manninum sem féll við eggjatöku í Aðalvík á Hornströndum. M...  

Meira
Innlent 20. maí. 2012 16:59

Féll 10 til 20 metra við eggjatöku

Björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á norðanverðum Vestfjörðum voru kallaða...  

Meira
Innlent 20. maí. 2012 14:43

Hannes forsetaframbjóðandi: Þetta lítur ljómandi vel út

Hannes Bjarnason forsetaframbjóðandi er nú að safna síðustu undirskriftunum fyrir framboð ...  

Meira
Innlent 20. maí. 2012 13:16

Steingrími var boðið að gerast fjármálastjóri Grikklands

Steingrími J. Sigfússyni, efnahags- og viðskiptaráðherra, var boðið að gerast sérstakur fj...  

Meira
Innlent 20. maí. 2012 13:10

Lockerbie-morðinginn látinn

Abdel Baset al-Megrahi sem var dæmdur fyrir að sprengja farþegaþotu í loft upp yfir skoska...  

Meira
Innlent 20. maí. 2012 12:12

Manni hent fram af svölum í Kópavogi

Manni var hent fram af svölum íbúðar á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi í Kópavogi klukkan rúmle...  

Meira
Innlent 20. maí. 2012 14:24

Áverkarnir alvarlegir - ekki í lífshættu

Áverkar mannsins sem ráðist var á við Grandagarð í Reykjavík í gærkvöldi eru alvarlegir. H...  

Meira
Innlent 20. maí. 2012 09:57

Sextán ára ölvaður undir stýri - foreldri sótti hann á lögreglustöðina

Mikið var útköll vegna ölvunar og hávaða hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Fimm...  

Meira
Innlent 20. maí. 2012 09:52

Leituðu að hópi ferðamanna á Austurlandi

Björgunarsveitir á Austurlandi voru kallaðar út um eittleytið í nótt til að leita að hópi ...  

Meira
Innlent 20. maí. 2012 09:38

Leki í vélarvana rækjuskipi

Björgunarskipið Björg og Lífsbjörg á Snæfellsnesi voru kölluð út um klukkan tvö í nótt veg...  

Meira
Innlent 20. maí. 2012 09:32

Á gjörgæslu eftir alvarlega líkamsárás

Maður liggur á gjörgæslu eftir alvarlega líkamsárás við Grandagarð í Reykjavík rétt fyrir ...  

Meira
Innlent 20. maí. 2012 10:01

Kýldi mann af engu tilefni fyrir framan lögregluna

Klukkan hálf sex í morgun var maður handtekinn við stjórnarráðið í Lækjargötu eftir að lög...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Réttarhöldum yfir níumenningunum lokið