Innlent

Reykvíkingar fundu skjálfta

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Kleifarvatn er á Krýsuvíkursvæðinu.
Kleifarvatn er á Krýsuvíkursvæðinu. mynd/ pjetur.
Jarðskjálfti sem varð nærri Krýsuvík rétt eftir klukkan níu í kvöld fannst greinilega. Samkvæmt bráðabirgðamælingum Veðurstofu Íslands varð skjálftinn klukkan tólf mínútur yfir níu um 2,7 kílómetrum vestnorðvestan af Krýsuvík. Bráðabirgðamælingin sýnir að hann var 3,6 á Richterskvarða.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni var jarðskjálftafræðingur á vakt enn að reikna út endanlegar niðurstöður. Skjálftinn fannst á nokkrum stöðum i Reykjavík, meðal annars í Vesturbænum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×