Reyna að koma í veg fyrir dauða milljón barna 17. maí 2013 17:49 Á myndinni er hluti starfsmanna Barnaheilla – Save the Children á Íslandi og GlaxoSmithKline.
Barnaheill - Save the Children hafa ráðist í samstarf við lyfjafyrirtækið GlaxoSmithKline (GSK) með það að markmiði að koma í veg fyrir dauða milljón barna undir fimm ára aldri á næstu fimm árum. Aðgengi að tveimur tegundum barnalyfja verður aukið til að ráðast gegn nýbura- og ungbarnadauða. Sérfræðiþekking beggja aðila á mismunandi sviðum verður grunnurinn að verkefninu sem hófst formlega 10. maí, fyrst í Kongó og Kenýu. Reynslan þar verður nýtt til að setja af stað sambærileg verkefni í fleiri löndum í suðurhluta Afríku, Asíu og Suður-Ameríku. Í tilkynningu frá Barnaheillum á Íslandi kemur fram að rannsóknir og þróunarvinna GSK hafa meðal annars leitt í ljós að sýklaeyðandi efni í munnskoli er hægt að umbreyta í lyf fyrir nýbura. Fyrirtækið hefur einnig kynnt til sögunnar sýklalyf í duftformi sem hentar vel ungum börnum með lungnabólgu, en hún er ein helsta dánarorsök barna undir fimm ára aldri. „Þetta er í fyrsta sinn sem Barnaheill - Save the Children taka þátt í að rannsaka og þróa lyf fyrir börn, en það gerist með þátttöku í sérstakri stjórn sem hefur það meðal annars að markmiði að hraða þróun nýsköpunar í lyfjum sem vinna gegn barnadauða. Stjórnin skoðar einnig nýjar aðferðir sem tryggja sem mesta dreifingu og aðgengi að lyfjunum í þróunarlöndum. GSK mun styrkja hlutverk Save the Children í heilsufarsmálum, styðja sérfræðiþekkingu og veita þannig börnum í afskekktustu og vanþróuðustu samfélögunum grunnheilbrigðisþjónustu,“ segir í tilkynningunni
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Fleiri fréttir Uppsagnir leggjast þungt á Vopnafjörð „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Sjá meira