Það var Rúnar Þór Jónsson sem var fyrstur til þess að verða útilokaður frá sæti á stjórnlagaþinginu samkvæmt kosningakerfinu sem var notað. Hann hlaut eitt atkvæði og var því útilokaður í lotu 3.
Næstur á eftir honum var Ægir Geirdal Gíslason, fyrrverandi öryggisvörður. Pressan birti viðtal við systur sem sökuðu hann um að hafa misnotað sig þegar þær voru börn fyrir kosningarnar.
Í viðtali á Vísi sagði hann þær á eftir peningum. Svo virðist sem Ægir hafi ekki notið vítæks stuðnings til stjórnlagaþings en hann hlaut 6 atkvæði.
Fyrstu tíu sem duttu út fengu samtals 96 atkvæði. Flest atkvæði fengu Daði Már Jónsson og Úlfur Einarsson eða 13 atkvæði hvor. Daði tapaði fyrir Úlfi þegar hlutkesti var varpað. Úlfur tapaði svo næst.
Íris Lind Sæmundsdóttir, lögfræðingur, var næst inn samkvæmt kosningakerfinu. Hún rannsakaði meðal annars stjórnarskráabreytingar í meistararitgerð sinni. Þess má geta að hún er búsett í Vesturbæ Reykjavíkur eða póstnúmeri 107, þar sem næstflestir kjörnir stjórnlagaþingmenn búa.
Hér er listi yfir þá tíu sem voru fyrst útilokaðir. Svo fylgir á eftir listi yfir þá 25 frambjóðendur sem voru næstir inn.
Fyrstir til þess að verða útilokaðir:
Rúnar Þór Jónsson lota 3. 1 atkvæði
Ægir Geirdal Gíslason lota 4. 6 atkvæði
Ólafur Torfi Yngvason lota 5. 7 atkvæði
Elinborg Skúladóttir lota 6. 10 atkvæði
Guðni Karl Harðarson lota 7. 11 atkvæði
Jóhannes Jónsson lota 8. 11 atkvæði
Ásgeir Baldursson, tapar í hlutkesti í lotu 9. 12 atkvæði
Bergsveinn Guðmundur Guðmundsson tapar í hlutkesti í lotu 10. 12 atkvæði
Daði Már Jónsson tapar í hlutkesti í 11 lotu. 13 atkvæði
Úlfur Einarsson tapar í hlutkesti í tólftu lotu. 13 atkvæði
Hér er svo listi yfir þá 25 sem hefðu verið næstir inn:
Íris Lind Sæmundsdóttir
Stefán Gíslason
Þorgeir Tryggvason
Jón Ólafsson
Magnús Thoroddsen
Birna Þórðardóttir
Gunnar Hersveinn Sigursteinsson
Guðrún Högnadóttir
Þorsteinn Arnalds
Árni Indriðason
Jónas Kristjánsson
Kristín Vala Ragnarsdóttir
Sigurður Guðmundur Tómasson
Tryggvi Gíslason
Ingibjörg Snorradóttir Hagalín
María Ágústsdóttir
Elías Blöndal Guðjónsson
Anna Kristín Kristjánsdóttir
Reynir Grétarsson
Árni Björnsson
Ólína Freysteinsdóttir
Valgarður Guðjónsson
Birna Guðrún Konráðsdóttir
Stefán Pálsson
Guðrún Helgadóttir