Innlent

Sælgætisverksmiðja horfin í Hafnarfirði

Tækjakosturinn var orðinn gamall og ekki á færi hvers sem er að starfrækja hann.
Tækjakosturinn var orðinn gamall og ekki á færi hvers sem er að starfrækja hann. Mynd / Jóhannes g. bjarnason
Sælgætisgerðarmaðurinn Jóhannes G. Bjarnason stendur ráðþrota frammi fyrir dularfullu hvarfi lífsviðurværis síns til margra ára; heilli brjóstsykursverksmiðju sem gufaði upp í Hafnarfirði síðasta sumar. Hann kærði málið sem þjófnað en lögregla hefur nú fellt málið niður.

Jóhannes, sem hefur áratuga reynslu úr sælgætisiðnaði, rak um árabil brjóstsykursverksmiðjuna Bitmola á Dalvík ásamt syni sínum og öðrum ættingjum. „Þetta var í glerkrukkum og rokseldist alveg hreint," segir Jóhannes.

Í fyrra ákvað fjölskyldan að söðla um og flytja starfsemina til borgarinnar. Öllu innvolsi verksmiðjunnar var komið fyrir í 20 feta gámi sem stóð síðan um hríð á lóð iðnaðarhúsnæðis í Hafnarfirði. Þaðan hvarf gámurinn sporlaust í júní í fyrra. Innihald hans er metið á tvær til þrjár milljónir króna.

Jóhannes undrast mjög að einhver skuli vilja stela brjóstsykursverksmiðju, eða yfirleitt þekkja slíka í sjón. Tækin séu gömul og afurðin auðþekkjanleg. „Hvað ætla menn að gera? Ef þeir færu að framleiða brjóstsykur í þessu þá myndi maður strax þekkja hann á því hvernig hann er mótaður."

Jóhannes grunaði strax að lóðareigandinn hefði átt hlut að máli, enda hefði honum verið hótað dagsektum vegna gámsins sem stóð í óleyfi á lóðinni. Væri hann saklaus hlyti grunur að falla á keppinauta hans úr sælgætisbransanum.

Jóhannes kærði því málið til lögreglu sem þjófnað. Í mars síðastliðnum var honum svo tilkynnt að rannsóknin hefði engu skilað og að málið hefði verið fellt niður.

„Ég er nú búinn að gera ansi margt, örugglega meira en lögreglan," segir Jóhannes. Nær úrkula vonar um að verksmiðjan finnist ætlar hann þó að gera lokatilraun til að þefa gáminn uppi með því að grafast fyrir um skráningarnúmer hans og uppruna og reyna síðan rekja slóðina. Skyldi verksmiðjan hins vegar hafa komið fyrir sjónir einhvers liðið ár vonast hann til að myndirnar sem fylgja þessari frétt fái viðkomandi til að hafa við hann samband.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×