Innlent

Sakar ESB um ýkjur

Gunnar Bragi utanríkisráðherra
Gunnar Bragi utanríkisráðherra
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir Stefan Füle stækkunarstjóra Evrópusambandins fara frjálslega með staðreyndir um stöðu viðræðnanna við Íslands um aðild að Evrópusambandinu.

En Füle hafi sagt í gær að sambandið væri ekki langt frá því að leggja fyrir Íslendinga samning sem hefði tekið tillit til sérstöðu Íslands en um leið grundvallarreglna Evrópusambandsins og allra reglna leiksins.

Utanríkisráðherra segir staðreynd málsins hins vegar þá, að öll stærstu málin í þessum viðræðum hafi enn staðið út af þegar hlé var gert á þeim.

Þótt margir samningskaflar hefðu verið opnaðir og um þriðjungi lokað, fái það ekki staðist að stutt hafi verið í samningsniðurstöðu þegar kaflar um sjávarútveg og landbúnað hafi ekki verið opnaðir svo ekki sé minnst á þá staðreynd að ESB hafði ekki einu sinni afgreitt sína eigin rýniskýrslu um sjávarúvegskaflann.

Fullyrðingar Stefans Fule stækkunarstjóra ESBsýni að brýnt sé að réttar upplýsingar um stöðu viðræðnanna við ESB séu á borðinu.

Gunnar Bragi segir að þess vegna muni sá þáttur einmitt verða hluti af þeirri úttekt sem hann muni kynna fljótlega á nýju ári. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×