Lífið

Saltbóndi á Reykhólum

Ása Ottesen skrifar
Garðar Stefánsson og  Søren Rosenskilde framleiða flögusalt á Reykhólum
Garðar Stefánsson og Søren Rosenskilde framleiða flögusalt á Reykhólum Mynd/Eggert Jóhannesson
„Saltið er í öllu og það má eiginlega segja að saltið hafi goðsagnakennt hlutverk í siðmenningu okkar, með tilkomu saltsins var í fyrsta skipti hægt að geyma matvæli til lengri tíma,“ segir frumkvöðullinn og saltbóndinn Garðar Stefánsson, sem framleiðir umhverfisvænt salt ásamt félaga sínum, Søren Rosenskilde, á Reykhólum.

„Lokaverkefnið mitt í mastersnáminu í upplifunarfræðum var saltframleiðsla og þannig kviknaði áhuginn á að fara út í framleiðslu á íslensku salti,“ segir hann. Garðar opnaði 540 fermetra verksmiðju á Reykhólum ásamt Søren en þeir kjósa að kalla verksmiðjuna Upplifunarfabrikkuna.

„Ég bý í Reykjavík en keyri reglulega á milli til þess að sinna saltframleiðslunni. Það er partur af því að vera frumkvöðull að fara út fyrir hinn hefðbundna ramma. Fjölskyldan mín hefur mikla trú á mér en á sama tíma finnst henni ég vera svolítið klikkaður,“ segir Garðar og hlær.

Saltið sem þeir félagar framleiða er svokallað flögusalt og er umhverfisvænt. Aðspurður segir Garðar að það sé tæknilega séð frekar flókið að framleiða flögusalt. „Það krefst gífurlegrar nákvæmni en okkur hefur tekist vel til og vonumst til að saltið komi á markað á næstu vikum.“

Fyrirtæki Garðars, Norður og Co., einblínir sér að framleiðslu á matvælum unnum úr íslenskri náttúru án þess að skaða umhverfið.

„Okkur langar til þess að prófa okkur áfram og framleiða ýmiss konar lífræn matvæli.“ Aðspurður segir Garðar að hann sjái mörg tækifæri í matvælaiðnaðinum. „Það eru tækifæri í því að keyra á íslenskum náttúruafurðum. Matvælaiðnaðurinn er einn sá mengaðasti í heiminum.

Þar stöndum við Íslendingar frammi fyrir ótrúlegum tækifærum í umhverfisvænni framleiðslu,“ segir Garðar að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.